Styrkir úr tónlistarsjóði
Menntamálaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um styrki úr tónlistarsjóði, samkvæmt lögum um tónlistarsjóð nr. 76/2004, til verkefna sem efnt verður til á tímabilinu janúar til ágúst 2008. Næst verður auglýst eftir umsóknum í maí 2008 vegna verkefna á síðari hluta árs 2008.
Hlutverk tónlistarsjóðs er að efla íslenska tónlist og stuðla að kynningu á íslenskum tónlistarmönnum og tónsköpun þeirra. Sjóðurinn skiptist í tvær deildir, tónlistardeild og markaðs- og kynningardeild. Nánari upplýsingar um hlutverk sjóðsins, úthlutunarreglur, umsóknir og mat á þeim eru á vef mennamálaráðuneytis.
Öll tilskilin fylgigögn þurfa að berast með umsókn. Að öðrum kosti eru umsóknir ekki teknar til umfjöllunar. Minnt er á að styrkþegar úr fyrri úthlutunum þurfa að hafa skilað inn greinargerð vegna þeirra verkefna áður en nýjar umsóknir eru teknar til umfjöllunar.
Gert er ráð fyrir að umsóknir hljóti afgreiðslu tónlistarráðs innan átta vikna frá auglýstum skilafresti. Við mat á umsóknum er m.a. tekið tillit til listræns gildis og mikilvægis verkefnis fyrir almenna tónlistarstarfsemi og eflingu íslenskrar tónlistar, gildi og mikilvægis verkefnis fyrir kynningu og markaðssetningu íslenskrar tónlistar, starfsferils, faglegs og/eða listræns bakgrunns umsækjanda og fjárhagsgrundvallar verkefnisins.
Umsóknum skal skila á þar til gerðum eyðublöðum sem fást í menntamálaráðuneyti eða á vef þess: menntamalaraduneyti.is
Umsóknir skulu vera í þríriti og öll eintök undirrituð.
Umsóknarfrestur rennur út mánudaginn 19. nóvember 2007.
Umsóknir skal senda á póstfangið: Menntamálaráðuneyti, tónlistarsjóður, Sölvhólsgötu 4, 150, Reykjavík.]