Hoppa yfir valmynd
16. október 2007 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Fundaröð verkefnisstjórnar 50+

Árið 2005 skipaði félagsmálaráðherra sjö manna verkefnisstjórn sem ætlað er að stýra fimm ára verkefni sem hefur það meginmarkmið að styrkja stöðu miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði. Eitt af því sem verkefninu er ætlað er að styrkja stöðu þeirra sem eru 50 ára og eldri með því að skapa jákvæða umræðu um miðaldra og eldra fólk á vinnumarkaði. Markmiðið er meðal annars að bæta ímynd þeirra með því að vekja athygli á kostum þeirra sem starfsmanna og móta farveg fyrir viðhorfsbreytingu í þjóðfélaginu.

Morgunverðarfundir verða haldnir á Grand hóteli – Háteigi (salur á 4. hæð) þann 19. október, 2. nóvember og 15. nóvember 2007.

 

Dagskrá:

 

19. október kl. 8.30–10.00

  • Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra ávarpar fundargesti.
  • Sigurður Jóhannesson, hagfræðingur á Hagfræðistofnun Háskóla Íslands, fjallar um samverkan launa- og lífeyristekna og hvort það sé þjóðhagslegur ávinningur af atvinnuþátttöku eldra fólks.
  • Sigríður Lillý Baldursdóttir, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Tryggingastofnunar ríkisins, fjallar um kostnað samfélagsins af því að missa fólk fyrr af vinnumarkaði út frá heilsufarslegum og félagslegum forsendum. 
  • Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, fjallar um breytingar í mannfjöldaþróun næstu áratuga og áhrif breytinganna á íslenskan vinnumarkað.

 

2. nóvember kl. 8.30–10.00

  • Emil B. Karlsson, forstöðumaður Rannsóknarseturs verslunarinnar, fjallar um rannsókn Rannsóknarsetursins á ávinningi fyrirtækja af atvinnuþátttöku eldra fólks.
  • Guðríður H. Baldursdóttir, starfsmannastjóri Kaupáss, fjallar um möguleika og reynslu fyrirtækjanna af að ráða eldra fólk til starfa.
  • Guðrún Stella Gissurardóttir, forstöðumaður þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á Vestfjörðum, fjallar um mentorahugmyndina – félagsvinakerfi – og möguleika fyrirtækjanna til að nýta sér hana.   

 

15. nóvember kl. 8.30–10.00

  • Sveinn Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Starfsafls, starfsmenntar samtaka atvinnulífsins og Flóabandalagsins, fjallar um Evrópuverkefni sem Starfsafl tekur þátt í og miðar að því að styrkja stöðu eldra fólks á vinnumarkaði. 
  • Séra Bernharður Guðmundsson, fulltrúi Öldrunarráðs Íslands í norrænni nefnd, Ældre i arbejdslivet, fjallar um breytilegar þarfir og aðstæður fólks á vinnumarkaði.   
  • Halldóra Friðjónsdóttir, formaður Bandalags háskólamanna og nefndarmaður í Verkefnisstjórn 50+, fjallar um erlend verkefni sem unnin hafa verið með þennan aldurshóp í fyrirtækjum.


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum