Háskólafundaröð: Ísland á alþjóðavettvangi - erindi og ávinningur
Næst á dagskrá:
Þátttaka Íslands í friðargæslu - af hverju?
Málþing í Háskólanum á Bifröst
Föstudaginn 19. október kl. 10.30 - 13.00
Á málþinginu verður fjallað um alþjóðlega friðargæslu frá ólíkum sjónarhornum og þátttöku Íslands í henni. Á undanförnum árum hafa Íslendingar fengið umtalsverða reynslu af störfum á átaka- og hamfarasvæðum. Þessir aðilar hafa starfað á vettvangi alþjóðastofnana eins og Rauða krossins, ÖSE og Sameinuðu þjóðanna, og á síðustu árum hafa margir starfað fyrir Íslensku friðargæsluna víða um heim. Á málþinginu verður spurt hvers eðlis íslensk friðargæsla er og hvert ber að stefna? Hvað má læra af reynslunni og hvernig getur hún nýst Íslandi í framtíðinni þ.á.m. við þátttöku í alþjóðlegum verkefnum á borð við hugsanlegra setu í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna?
Dagskrá
Anna Jóhannsdóttir, forstöðumaður Íslensku friðargæslunnar
Stefnumörkun og reynsla friðargæslunnar
Davíð Logi Sigurðsson, blaðamaður
Framboð og friðargæsla - hvaða hlutverki gegna blaðamenn?
Jónas G. Allansson, friðargæsluliði og mannfræðingur
Á vettvangi friðargæslu í Afganistan og Sri Lanka
Guðni Th. Jóhannesson, sérfræðingur við Háskólann í Reykjavík
Viðbrögð við erindum fyrirlesara
Jón Ólafsson, forseti félagsvísindadeildar Háskólans á Bifröst, stjórnar umræðum.
Allir Velkomnir!
Íslensk stjórnvöld efna til fundaraðarinnar í samvinnu við alla háskóla landsins. Fundir eru haldnir mánaðarlega og lýkur með ráðstefnu með þátttöku erlendra fræðimanna vorið 2008.
Nánari upplýsingar um háskólafundaröðina