Hoppa yfir valmynd
18. október 2007 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Skipun skattstjóra á Skattstofu Norðurlandsumdæmis vestra

Fjármálaráðuneytið, fréttatilkynning nr. 23/2007

Fjármálaráðherra hefur skipað Hönnu Björnsdóttur til að gegna embætti skattstjóra á Skattstofu Norðurlandsumdæmis vestra frá 1. desember 2007 til fimm ára.

Hanna lauk B.Sc. í viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri árið 2006. Hún hefur starfað á Skattstofu Norðurlandsumdæmis vestra, með hléum, frá 1992. Frá 2005 hefur Hanna sinnt starfi deildarstjóra og staðgengils skattstjóra.

Alls bárust þrjár umsóknir um starfið.

Fjármálaráðuneytinu, 18. október 2007

 



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum