Sveigjanleg starfslok - ávinningur allra
Fyrsti fundur Verkefnisstjórnar 50+ af þremur verður haldinn föstudaginn19. október.
- Hver er ávinningur þjóðfélagsins af atvinnuþátttöku eldra fólks?
- Hvað kostar það samfélagið að fólk fer fyrr af vinnumarkaði s.s. vegna örorku eða atvinnuleysis?
- Hver verður mannfjöldaþróunin á Íslandi á næstu áratugum og hvaða áhrif hefur það á vinnumarkaðinn
Stjórnmálamenn, atvinnurekendur, stjórnendur, rannsakendur og áhugafólk um íslenskan vinnumarkað athugið! Verkefnisstjórn 50+ efnir til fundaraðar um málefni miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði.
Fyrsti fundur af þremur verður á Grand Hóteli Reykjavík, Háteigi (salur á 4. hæð), þann 19. október n.k. kl. 8:30-10:00.
Dagskrá:
- Ávarp Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra.
- Sigurður Jóhannesson hagfræðingur á Hagfræðistofnun Háskóla Íslands fjallar um samverkan launa- og lífeyristekna.
- Sigríður Lillý Baldursdóttir framkvæmdastjóri þróunarsviðs Tryggingastofnunar ríksins fjallar um kostnað samfélagsins af því að missa fólk fyrr af vinnumarkaði út frá heilsufarslegum og félagslegum forsendum.
- Hannes G. Sigurðsson aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins fjallar um breytingar í mannfjöldaþróun næstu áratuga og áhrif breytinganna á íslenskan vinnumarkað.
Fundarstjóri: Gunnar Kristjánsson formaður Verkefnisstjórnar 50+.
Nánari upplýsingar um starf verkefnisstjórnarinnar og fundaröðina er að finna á heimasíðu Vinnumálastofnunar www.vinnumalastofnun.is. Morgunverður verður framreiddur frá kl. 08:00, verð kr. 1.400.
Æskilegt er að þátttakendur skrái sig á netfangið [email protected].