Óskað eftir athugasemdum við drög að stefnumörkun um líffræðilega fjölbreytni
Almenningi, félagasamtökum og stofnunum gefst tækifæri til að senda inn athugasemdir við drög að stefnumörkun um líffræðilega fjölbreytni, sem kynnt voru á Umhverfisþingi 12.-13. október. Athugasemdirnar má senda í tölvupósti á netfangið [email protected] fyrir 15. desember 2007.
Drög að stefnumörkun um líffræðilega fjölbreytni.