Hoppa yfir valmynd
24. október 2007 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Nýr tvísköttunarsamningur við Bandaríkin

Fjármálaráðuneytið, fréttatilkynning nr. 24/2007

Í gær var undirritaður í Washington nýr samningur milli Íslands og Bandaríkja Norður- Ameríku (PDF 132 KB) til að koma í veg fyrir tvísköttun. Af hálfu Íslands undirritaði Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra, samninginn en fyrir hönd Bandaríkjanna, Robert M. Kimmit, varafjármálaráðherra.

Hinn nýi samningur felur í sér aðlögun að gildandi stefnu ríkjanna í tvísköttunarmálum og breyttu efnahagsumhverfi í alþjóðlegu tilliti.

Helstu breytingar eru þær að tekinn er upp afdráttarskattur á tilteknar tegundir þóknana, lífeyrissjóðir njóta ótvírætt ívilnana hins nýja samnings og tekið er upp sérstakt takmarkandi ákvæði (Limitations on benefits) en því er ætlað að tryggja að einungis þeir skattaðilar sem uppfylla skilyrði þeirra ákvæða njóti ívilnana samningsins.

Við undirritun samningsÁ myndinni: Maríanna Jónasdóttir skrifstofustjóri í fjármálaráðuneytinu, Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra, Robert M. Kimmit varafjármálaráðherra Bandaríkjanna og Henry Louie starfsmaður fjármálaráðuneytis Bandaríkjanna.

Fjármálaráðuneytinu 24.október 2007



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum