Hoppa yfir valmynd
26. október 2007 Matvælaráðuneytið

Strandríkjasamningur um stjórn síldveiða árið 2008

Strandríkjasamningur um stjórn síldveiða árið 2008

Á fundi strandríkja um stjórnun síldveiða úr norsk-íslenska síldarstofninum, sem lauk í Lundúnum í gær, náðist samkomulag um að heildaraflamark verði 1.266.000 tonn árið 2008.

 

Niðurstaða strandríkjanna er í fullu samræmi við vísindaráðgjöf Alþjóða Hafrannsóknaráðsins (ICES) og þá langtíma stjórnunaráætlun sem sett hefur verið og tryggja á sjálfbæra nýtingu stofnsins til lengri tíma.  Niðurstaða vísindamanna er sú að staða stofnsins sé áfram mjög góð og er því um að ræða litla breytingu á leyfilegum heildarafla milli ára, eða einungis 1,09%.

 

Samkvæmt samkomulaginu verður íslenskum skipum heimilað að veiða 183.697 tonn.

 

Hlutur annarra aðila strandríkjasamningsins er eftirfarandi:

 

Evrópusambandið                       82.417 tonn

Færeyjar                                    65.326 tonn

Noregur                                   772.260 tonn

Rússland                                   162.301 tonn

 

Í sendinefnd Íslands á strandríkjafundinum voru Stefán Ásmundsson og Steinar Ingi Matthíasson frá sjávarútvegsráðuneytinu.

 

Frekari upplýsingar veitir Stefán Ásmundsson í síma 862-3637.

 



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum