Fundir forsætisráðherra Norðurlanda í tengslum við Norðurlandaráðsþing í Ósló
Geir H. Haarde forsætisráðherra sækir í dag fund norrænu forsætisráðherranna með forsætisráðherrum Eistlands, Lettlands og Litháens. Á morgun munu norrænu forsætisráðherrarnir eiga með sér fund auk þess sem þeir hitta forsætisnefnd Norðurlandaráðs og stjórnarleiðtoga Grænlands, Færeyja og Álands. Forsætisráðherra mun jafnframt sitja 59. þing Norðurlandaráðs sem hefst á morgun og lýkur á fimmtudag. Nánari upplýsingar um fundi forsætisráðherra veitir Snjólaug Ólafsdóttir í síma 896 3962.
Reykjavík 29. október 2007