Áhrif hnattvæðingar á Norðurlönd - opinn borgarafundur í Osló
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, tekur á morgun þátt í opnum borgarafundi í Bókmenntahúsinu (Litteraturhuset) í Osló ásamt öðrum utanríkisráðherrum Norðurlanda. Fundarefnið er áhrif hnattvæðingar á Norðurlönd og eru öll sæti bókuð í salnum með allnokkrum fyrirvara. Þekkt norsk sjónvarpskona Siri Lill Mannes stýrir umræðum og ráðherrarnir svara líka spurningum úr sal. Umræðunum verður varpað beint á Netinu og hefst útsending klukkan 15.00 að íslenskum tíma. Meðfylgjandi er tengill inn á útsendinguna.
Nánari upplýsingar um fundinn á vef utanríkisráðuneytis Noregs.