Hoppa yfir valmynd
30. október 2007 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Frumvarpi til nýrra heildarlaga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla var dreift á Alþingi í dag

Frumvarpi félagsmálaráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttur, til nýrra heildarlaga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla var í dag dreift á Alþingi.


Helstu nýmæli í frumvarpinu frá gildandi lögum eru eftirfarandi:

  • Lagt er til að eftirlitsheimildir Jafnréttisstofu með framkvæmd laganna verði efldar og gerðar skýrari auk þess að unnt verði að fylgja þeim eftir með dagsektum í vissum tilvikum.
  • Lagt er til að úrskurðir kærunefndar jafnréttismála verði bindandi fyrir málsaðila í stað álitsgerða samkvæmt gildandi lögum auk ýmissa nýmæla varðandi málsmeðferð fyrir kærunefnd.
  • Lagt er til afnám samningsbundinnar skyldu til launaleyndar í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar.
  • Lagt er til að samhliða jafnréttisáætlunum sem fyrirtækjum með 25 eða fleiri starfsmenn er skylt að gera samkvæmt gildandi lögum, verði jafnframt gerð framkvæmdaáætlun þar sem fram kemur hvernig fyrirtæki hyggist framfylgja jafnréttisáætlun sinni.
  • Lagt er til að jafnréttisfulltrúar ráðuneytanna hafi sérþekkingu á jafnréttismálum þar sem ljóst þykir að styrkja þurfi stöðu þessara fulltrúa frá því sem nú er.
  • Lagt til að félagsmálaráðherra boði til sérstaks jafnréttisþings innan árs frá alþingiskosningum og aftur að tveimur árum liðnum í því skyni að hvetja til virkari umræðu um jafnréttismál meðal almennings á sem flestum sviðum samfélagsins.


Unnt er að nálgast frumvarpið á heimasíðu Alþingis.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum