Hillir undir lausn á húsnæðisvanda Náttúrufræðistofnunar
Náttúrufræðistofnun Íslands hefur ákveðið að ganga til samninga við Urriðaholt ehf. um byggingu nýs húsnæðis fyrir stofnunina í Urriðaholti í Garðabæ. Þetta kom fram í máli Jóns Gunnars Ottóssonar, forstjóra stofnunarinnar á ársfundi hennar fyrir skömmu. Hann sagði að þar með hillti loks undir lausn á langvinnum húsnæðisvanda stofnunarinnar.
Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra flutti ávarp á ársfundinum og ræddi m.a. um mikilvægi þess að styrkja stöðu náttúruverndar á Íslandi með því að veita aukið fé til rannsókna á grunnþáttum náttúrunnar og að leggja mat á gildi friðlýstra svæða.
Sjá frétt Náttúrufræðistofnunar um ársfundinn.