Hoppa yfir valmynd
12. nóvember 2007 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Þriðji morgunverðarfundur verkefnisstjórnar 50+

Sveigjanleg starfslok – ávinningur allra

Er eftirsóknarvert fyrir einstaklinga að vera í starfi fram eftir ævi?  

Af hverju er langtímaatvinnuleysi meira meðal eldra fólks en þess yngra?

Hvernig hafa breytingar í lífshlaupi fólks áhrif á atvinnuþátttöku þess og þarfir á vinnumarkaði? 

Er sveigjanleiki ákjósanlegur eða getur hann verið íþyngjandi? 

 

Atvinnurekendur, stjórnendur, rannsakendur, stjórnmálamenn og áhugafólk um íslenskan vinnumarkað athugið!

Verkefnisstjórn 50+ efnir til fundaraðar um málefni miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði.  Síðasti fundurinn af þremur verður á Grand Hóteli Reykjavík, Háteigi (salur á 4. hæð) þann 15. nóvember næstkomandi klukkan 8.30–10.00.

 

Dagskrá

  1. Sveinn Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Starfsafls, fjallar um Evrópuverkefni sem Starfsafl tekur þátt í sem miðar að því að styrkja stöðu eldra fólks á vinnumarkaði.
  2. Séra Bernharður Guðmundsson, fulltrúi Öldrunarráðs Íslands í norrænni nefnd, Ældre i arbejdslivet, fjallar um breytilegar þarfir og aðstæður fólks á vinnumarkaði.
  3. Halldóra Friðjónsdóttir, formaður Bandalags háskólamanna og nefndarmaður í verkefnisstjórn 50+, fjallar um erlend verkefni sem unnin hafa verið með þennan aldurshóp í fyrirtækjum.

 

Fundarstjóri: Gunnar Kristjánsson, formaður verkefnisstjórnar 50+

 

Nánari upplýsingar um starf verkefnisstjórnarinnar og fundaröðina er að finna á heimasíðu Vinnumálastofnunar

 

Morgunverður verður framreiddur frá klukkan 8.00.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum