Dagskrá menntamálaráðherra á degi íslenskrar tungu, 16. nóvember 2007
Síðastliðin ár hefur skapast sú hefð að menntamálaráðherra heimsækir skóla og menningarstofnanir í einu ákveðnu sveitarfélagi á degi íslenskrar tungu. Hátíðardagskrá og afhending Verðlauna Jónasar Hallgrímssonar auk tveggja sérstakra viðurkenninga fyrir störf í þágu íslensks máls er einnig haldin í því sveitarfélagi. Síðustu tvö ár hefur menntamálaráðherra heimsótt Reykjanesbæ og Kópavog og nú í ár verður Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir í Reykjavík. Ráðherra mun heimsækja skóla, opna vef um lestrarerfiðleika ásamt því að opna formlega vef Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og taka þátt í íslenskuhátíð í Háskóla Íslands.
Eftirfarandi dagskrá menntamálaráðherra 16. nóvember er send fjölmiðlum til upplýsingar:
Heimsóknir í Reykjavík:
- 08:15 Leikskólinn Ægisborg, Ægissíðu 104
- 13:00 Árbæjarskóli, dagskrá nemenda á degi íslenskrar tungu
- 14:00 Ráðherra opnar formlega vef um lestrarerfiðleika í Árbæjarskóla
- 15:00 Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Neshaga 16
- 15:50 Ráðherra opnar formlega vef Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Árnagarði við Suðurgötu
- 16:00 Háskóli Íslands, Árnagarði við Suðurgötu. Íslenskuhátíð á degi íslenskrar tungu
- 19:30 Hátíðardagskrá í Þjóðleikhúsinu. Ráðherra afhendir Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar
Nánari upplýsingar um dagskrá dagsins má lesa á vefsíðu dags íslenskrar tungu
Viðburðir undir merkjum dags íslenskrar tungu 2007