Hoppa yfir valmynd
15. nóvember 2007 Matvælaráðuneytið

Mikilvægur orkufundur til Íslands.

Iðnaðarráðuneyti fréttatilkynning Nr. 15/2007

Á fundi stjórnarþings Heimsorkuráðsins í Rómarborg í vikunni var samþykkt að halda árlegan framkvæmdaráðsfund þess árið 2009 í Reykjavík. Um 500 manns munu sækja Ísland heim í tengslum við ársfundinn, þar á meðal margir helstu leiðtogar í orkumálum heimsins.

Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra mælti fyrir framboði Íslendinga að lokinni kynningu Þorkels Helgasonar, orkumálastjóra, á stöðu orkumála á Íslandi.

Í ræðu sinni undirrstrikaði iðnaðarráðherra forystuhlutverk Íslendinga í virkjun jarðvarma, og benti á þá staðreynd að engin önnur þjóð mætti 75% af orkuþörf sinni með grænni endurnýjanlegri orku.

Á stjórnarþinginu eiga á þriðja hundrað manns sæti, en langflestar þjóðir heims eru aðilar að Heimsorkuráðinu. Í röðum þess er að finna helstu leiðtoga heims á sviði orkumála, og mikilvæg stefnumótun og samráð fer fram innan þess.

Reykjavík, 15. nóvember 2007.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta