Umsækjendur um embætti ríkissaksóknara
Sex umsóknir bárust um embætti ríkissaksóknara en umsóknarfrestur rann út í gær, 19. nóvember.
Umsækjendur eru eftirtaldir:
Egill Stephensen, saksóknari við embætti ríkissaksóknara
Guðjón Ólafur Jónsson, hæstaréttarlögmaður
Jón H. Snorrason, aðstoðarlögreglustjóri og saksóknari embættis lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu
Ólafur Þór Hauksson, sýslumaður á Akranesi
Sigríður J. Friðjónsdóttir, saksóknari við embætti ríkissaksóknara
Valtýr Sigurðsson, forstjóri Fangelsismálastofnunar ríkisins
Reykjavík, 20. nóvember 2007