Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar-október 2007
Greiðsluuppgjör ríkissjóðs eftir fyrstu tíu mánuði ársins liggur nú fyrir. Samkvæmt uppgjörinu nam handbært fé frá rekstri um 51,2 ma.kr., sem er 2,4 ma.kr. aukning frá sama tíma í fyrra. Hreinn lánsfjárjöfnuður er neikvæður um 11,9 ma.kr., sem er 58,6 ma.kr. lakari útkoma en í fyrra. Það skýrist að mestu leyti af 30,3 ma.kr. kaupum ríkissjóðs á hlut Reykjavíkurborgar og Akureyrarbæjar í Landsvirkjun og eiginfjáraukningu Seðlabanka Íslands með 44 ma.kr. eiginfjárframlagi. Tekjur án eignasölu reyndust 39,4 ma.kr. meiri en á sama tíma á síðasta ári.
Sjóðstreymi ríkissjóðs janúar – október 2007
(Í milljónum króna)
|
2003 |
2004 |
2005 |
2006 |
2007 |
Innheimtar tekjur |
211.559 |
228.745 |
336.643 |
308.354 |
353.950 |
Greidd gjöld |
218.708 |
233.304 |
256.585 |
258.824 |
295.857 |
Tekjujöfnuður |
-7.149 |
-4.558 |
80.058 |
49.530 |
58.093 |
Söluhagn. af hlutabr. og eignahl. |
-12.013 |
0 |
-58.033 |
-384 |
-6.170 |
Breyting rekstrartengdra eigna og skulda |
23 |
1.710 |
-1.731 |
-356 |
-695 |
Handbært fé frá rekstri |
-19.139 |
-2.848 |
20.294 |
48.791 |
51.229 |
Fjármunahreyfingar |
20.614 |
9.273 |
48.377 |
-2.006 |
-63.097 |
Hreinn lánsfjárjöfnuður |
1.475 |
6.425 |
68.671 |
46.785 |
-11.868 |
Afborganir lána |
-30.654 |
-30.856 |
-61.557 |
-41.565 |
-33.503 |
Innanlands |
-18.204 |
-5.678 |
-14.064 |
-18.695 |
-22.271 |
Erlendis |
-12.450 |
-25.178 |
-47.493 |
-22.873 |
-11.232 |
Greiðslur til LSR og LH |
-6.250 |
-6.250 |
-3.300 |
-3.300 |
-3.300 |
Lánsfjárjöfnuður. brúttó |
-35.429 |
-38.680 |
3.814 |
1.920 |
-48.671 |
Lántökur |
27.439 |
30.408 |
9.048 |
25.961 |
58.383 |
Innanlands |
22.225 |
13.136 |
9.048 |
21.345 |
58.206 |
Erlendis |
5.214 |
17.272 |
- |
4.616 |
177 |
Breyting á handbæru fé |
-7.989 |
-272 |
12.862 |
27.882 |
9.712 |
Innheimtar tekjur ríkissjóðs námu 354 ma.kr. á fyrstu tíu mánuðum ársins. Það er 45,6 ma.kr aukning frá sama tíma í fyrra, eða 13% sé óreglulegum tekjum sleppt. Ef tekið er tillit til tilfærslu milli mánaða vegna tekjuskatts lögaðila í ársbyrjun 2006 nemur aukningin 16%, en tölurnar hér á eftir taka mið af henni. Skatttekjur og tryggingagjöld jukust um 13,2% að nafnvirði. Á sama tíma hækkaði almennt verðlag um 5% og raunaukning skatttekna og tryggingargjalda var því 7,8%. Aukning annarra rekstrartekna um 29,2% milli ára skýrist að mestu með vaxtatekjum af skammtímalánum, en þær uxu um 109%.
Skattar á tekjur og hagnað námu 113,5 ma.kr. og jukust um rúma 19 ma.kr. frá síðasta ári, eða 20,6%. Þar af jókst tekjuskattur einstaklinga um 8,1%, tekjuskattur lögaðila jókst um 40,3% og fjármagnstekjuskattur um 48,5%. Innheimt tryggingagjöld jukust um 5,9% milli ára á meðan launavísitalan hækkaði um 9,1%, en þess bera að gæta að skatthlutfallið lækkaði á milli ára úr 5,79% í 5,34%. Innheimta eignarskatta nam 9,5 ma.kr. og jókst um 24,9% frá sama tímabili í fyrra. Þar af námu stimpilgjöld 7,7 ma.kr. en innheimta þeirra á árinu hefur aukist um rúmar 1.700 milljónir frá fyrra ári.
Innheimta almennra veltuskatta gefur nokkuð góða mynd af þróun innlendrar eftirspurnar. Hún nam 159 ma.kr. á fyrstu tíu mánuðum ársins og jókst um 8,3% að nafnvirði frá fyrra ári eða 3,2% umfram hækkun vísitölu neysluverðs. Tekjur af virðisaukaskatti hafa aukist um 10,1% sem jafngildir 4,9% raunaukningu. Vegna lagabreytingar sem felur í sér rýmri greiðslufrest á virðisaukaskatti og aðflutningsgjöldum fer marktækni samanburðar við fyrra ár eftir því hvaða tímabil innan ársins er til skoðunar. Sé litið á síðustu mánuði, eða tímabilið frá því að lækkunar virðisaukaskatts þann 1. mars sl. tók að gæta til fulls í innheimtutölum, kemur fram hverfandi raunbreyting milli ára.
Eins og sést af myndinni hér að neðan þá er raunvöxtur veltuskatta í heild að aukast lítillega eftir verulegan samdrátt raunvaxtar árið 2006. Af einstökum liðum veltutengdra skatta er mest aukning í virðisaukaskatti og í sköttum á olíu og þungaskatti, eða um 10% en vörugjöld af ökutækjum drógust hins vegar saman um 0,1% milli ára.
Greidd gjöld nema 295,9 ma.kr. og hækka um 37 ma.kr. frá fyrra ári eða 14,3%. Mest aukning er vegna almannatrygginga- og velferðarmála 10,7 ma.kr. eða rúm 18%. Þar munar mest að lífeyristryggingar hækka um 5,8 ma.kr. á milli ára, fæðingarorlofsgreiðslur um 2 ma.kr. og barnabætur um 1,1 ma.kr. Almenn opinber þjónusta hækkar um 6,4 ma.kr. eða um 20% . Þar hækka vaxtagjöld mest af einstökum liðum eða um tæpa 3 ma.kr. Þar munar mestu að á þessu ári kom til greiðslu fyrsti gjalddagi nýrra ríkisbréfa og voru vextir vegna þessa 1,4 ma.kr. Aukning útgjalda til heilbrigðismála milli ára er 7,4 ma.kr., til efnahags- og atvinnumála 5,4 ma.kr. og til menntamála 3,6 ma.kr.
Lánsfjárþörf ríkissjóðs fyrstu tíu mánuði ársins nam 48,7 ma.kr. í heild, en hrein lánsfjárþörf var 11,9 ma.kr. Afborganir lána fyrstu tíu mánuðina eru 33,5 ma.kr., þar af hafa 11,2 ma.kr. verið greiddir upp af erlendum lánum. Heildarlántökur tímabilsins nema 58,4 ma.kr. og er allt tekið að láni innanlands. Annars vegar er um að ræða skuldabréfaútgáfu vegna kaupa ríkisins á 50% hlut Reykjavíkurborgar og Akureyrarbæjar í Landsvirkjun og hins vegar útgáfu á ríkisbréfum og ríkisvíxlum.
Tekjur ríkissjóðs janúar – október 2007
|
Milljónir króna |
|
Breyting frá fyrra ári, % |
||||
|
2005 |
2006 |
2007 |
|
2005 |
2006 |
2007 |
Skatttekjur og tryggingagjöld |
256.866 |
287.295 |
321.457 |
|
20,8 |
11,8 |
11,9 |
Skattar á tekjur og hagnað |
81.199 |
97.368 |
113.498 |
|
27,3 |
19,9 |
16,6 |
Tekjuskattur einstaklinga |
55.020 |
62.249 |
67.304 |
|
10,0 |
13,1 |
8,1 |
Tekjuskattur lögaðila |
8.437 |
17.129 |
19.480 |
|
61,0 |
103,0 |
13,7 |
Skattur á fjármagnstekjur |
17.741 |
17.990 |
26.714 |
|
108,4 |
1,4 |
48,5 |
Eignarskattar |
12.114 |
7.627 |
9.527 |
|
7,2 |
-37,0 |
24,9 |
Skattar á vöru og þjónustu |
133.175 |
146.878 |
159.070 |
|
19,8 |
10,3 |
8,3 |
Virðisaukaskattur |
91.389 |
101.916 |
112.221 |
|
20,2 |
11,5 |
10,1 |
Vörugjöld af ökutækjum |
8.605 |
8.883 |
8.873 |
|
68,9 |
3,2 |
-0,1 |
Vörugjöld af bensíni |
7.468 |
7.436 |
7.637 |
|
4,7 |
-0,4 |
2,7 |
Skattar á olíu |
3.949 |
5.577 |
6.141 |
|
-15,3 |
41,2 |
10,1 |
Áfengisgjald og tóbaksgjald |
8.948 |
9.291 |
9.745 |
|
6,2 |
3,8 |
4,9 |
Aðrir skattar á vöru og þjónustu |
12.815 |
13.776 |
14.452 |
|
29,9 |
7,5 |
4,9 |
Tollar og aðflutningsgjöld |
2.775 |
3.357 |
4.357 |
|
11,0 |
21,0 |
29,8 |
Aðrir skattar |
1.385 |
1.504 |
2.628 |
|
10,6 |
8,6 |
74,8 |
Tryggingagjöld |
26.219 |
30.560 |
32.377 |
|
15,7 |
16,6 |
5,9 |
Fjárframlög |
339 |
1.207 |
930 |
|
16,2 |
255,8 |
-22,9 |
Aðrar tekjur |
21.407 |
19.072 |
24.632 |
|
39,5 |
-10,9 |
29,2 |
Sala eigna |
58.031 |
781 |
6.931 |
|
- |
- |
- |
Tekjur alls |
336.642 |
308.354 |
353.950 |
|
47,2 |
-8,4 |
14,8 |
Gjöld ríkissjóðs janúar – október 2007
|
Milljónir króna |
|
Breyting frá fyrra ári, % |
|||
|
2005 |
2006 |
2007 |
|
2006 |
2007 |
Almenn opinber þjónusta |
37.902 |
31.847 |
38.204 |
|
-16,0 |
20,0 |
Þar af vaxtagreiðslur |
16.825 |
8.592 |
11.541 |
|
-48,9 |
34,3 |
Varnarmál |
218 |
487 |
668 |
|
123,3 |
37,2 |
Löggæsla, réttargæsla og öryggismál |
9.513 |
11.262 |
12.995 |
|
18,4 |
15,4 |
Efnahags- og atvinnumál |
20.877 |
35.695 |
41.125 |
|
71,0 |
15,2 |
Umhverfisvernd |
2.521 |
2.835 |
3.280 |
|
12,4 |
15,7 |
Húsnæðis- skipulags- og veitumál |
348 |
333 |
355 |
|
-4,1 |
6,7 |
Heilbrigðismál |
68.822 |
69.424 |
76.850 |
|
0,9 |
10,7 |
Menningar-, íþrótta- og trúmál |
10.162 |
11.422 |
13.095 |
|
12,4 |
14,6 |
Menntamál |
25.312 |
28.528 |
32.097 |
|
12,7 |
12,5 |
Almannatryggingar og velferðarmál |
56.744 |
59.331 |
70.065 |
|
4,6 |
18,1 |
Óregluleg útgjöld |
11.135 |
7.660 |
7.124 |
|
-31,2 |
-7,0 |
Gjöld alls |
243.554 |
258.824 |
295.857 |
|
6,3 |
14,3 |