Hoppa yfir valmynd
29. nóvember 2007 Dómsmálaráðuneytið

Ný reglugerð um lögreglusamþykktir

Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra undirritaði í dag reglugerð um lögreglusamþykktir. Hún er birt í Stjórnartíðindum í dag og tekur gildi þegar sex mánuðir eru liðnir frá birtingu hennar.

Reglugerðin skal vera fyrirmynd að lögreglusamþykktum sveitarfélaga. Í henni er að finna ýmis ákvæði er m.a. kveða á um allsherjarreglu, samskipti borgaranna og almennt öryggi þeirra á almannafæri. Í þeim sveitarfélögum þar sem lögreglusamþykkt hefur ekki verið sett kemur reglugerðin í stað lögreglu­samþykktar.

Þær lögreglusamþykktir sem nú eru í gildi í sveitarfélögum skulu halda gildi sínu í sex mánuði frá gildistöku reglugerðarinnar, það er í 12 mánuði frá setningu hennar, nema sveitarfélög setji sér nýja lögreglusamþykkt á tímabilinu.

Reglugerð um lögreglusamþykktir



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum