Hoppa yfir valmynd
29. nóvember 2007 Matvælaráðuneytið

Ráðstefna um stöðumat og stefnumótun fyrir þorskeldi.

Fréttatilkynning frá sjávarútvegsráðuneyti

Stöðumat og stefnumótun fyrir þorskeldi

Einar Kristinn Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra setti í morgun ráðstefnuna Stöðumat og stefnumótun fyrir þorskeldi sem fram fer á Grand Hóteli 29. – 30. nóvember.

 

Í setningarávarpi sínu fjallaði ráðherra meðal annars um framtíðarhorfur þorskeldis á Íslandi og sagði ýmislegt gefa tilefni til að þær geti verið góðar. Fyrirtækin sjálf hefðu forystu um uppbyggingu atvinnuvegarins en hið opinbera sjái um að móta meginstefnu og setja reglur í nánu samstarfi við greinina auk þess að stuðla að uppbyggingu þekkingar hjá vísindastofnunum, skólum og víðar, m.a. fyrir tilstilli AVS-sjóðsins. „Hvað þorskeldið varðar verðum við að sækja fram. Sú stefna hefur nú verið mótuð að leggja áherslu á að koma upp kynbættum eldisstofni þorsks og stuðla þannig að því að þorskeldið verði sem allra fyrst starfrækt sem aleldi, þ.e. eldisferillinn spanni allt frá hrognastigi til sláturfisks. Fyrstu árin er þó mikilvægt að afla reynslu með hinu svokallaða áframeldi þar sem smáþorskur er fangaður og alinn í sláturstærð í kvíum. Við þurfum jafnframt að vera þess meðvituð að í þorskeldinu bíður okkar vafalaust hörð samkeppni. Við því er ekkert að gera annað en einfaldlega að gera betur“.

Ráðherra bætti við að Íslendingum væri mjög mikilvægt að glata ekki sinni góðu stöðu á alþjóðamörkuðum fyrir þorsk. „Sú hætta kann að skapast ef við drögumst aftur úr öðrum þjóðum á sviði þorskeldis. Gleymum því ekki að þorskurinn er okkar langmikilvægasta nytjategund og við höfum lagt gríðarlegt fjármagn í nýtingu hans. Gildir það ekki síst um störf okkar að markaðssetningu á þorski. Það er ljóst að aðrar þjóðir eru að setja umtalsverða  fjármuni og þekkingu í þróun fiskeldis. Ef við sitjum hjá með hendur í skauti kunnum við að lenda í þeirri stöðu að glata því forystuhlutverki sem við höfum náð á mörkuðum erlendis“.

Íslendingar hafi aflað sér umtalsverðrar færni í þorskeldi með tilraunum með áframeldi og þegar hafi fyrstu skrefin verið stigin hvað aleldi snerti og ljóst sé að það þurfi að stórauka. Nú eru skipulegar kynbætur á þorski, með það að markmiði að koma upp eldisstofni með bætta arfgerð í mikilvægustu eldiseiginleikunum, komnar vel af stað. Í framhaldi af því verður að stórauka seiðaframleiðslu og um það markmið verður að nást samstaða sem byggist á þekkingu – erlendri og innlendri og raunhæfum rekstrarviðmiðunum. Í seiðaframleiðslunni verður það markmið að nást hér á landi að kynbætt eldisseiði fáist á samkeppnishæfu verði gagnvart útlöndum en svo að það takist og eins hitt að þorskeldið verði nægjanlega stórt í sniðum þarf að koma upp seiðaeldisstöð með umtalverða framleiðslugetu, eða a.m.k. 10 milljónir seiða árlega“, sagði Einar Kristinn Guðfinnsson í setningarávarpi sínu.

 

 

Ræðu ráðherra má sjá hér.

 

 

Sjávarútvegsráðuneytinu 29. nóvember 2007

 

 

 



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta