Styttist í verklok við Sæfara
Vélsmiðja Orms og Víglundar í Hafnarfirði vinnur nú að síðustu verkunum við endurbætur á nýrri Grímseyjarferju sem valið hefur verið nafnið Sæfari. Kristján L. Möller samgönguráðherra leit á skipið í gær og ræddi við fulltrúa verktakans.
Unnið er nú að síðustu verkefnunum varðandi innréttingar svo sem flísalögnum og ýmsum frágangi innan stokks. Forráðamenn Vélsmiðju Orms og Víglundar gera ráð fyrir að þeim verkefnum ljúki fljótlega eftir helgina. Þegar verki vélsmiðjunnar verður lokið á enn eftir að ganga frá nokkrum verkþáttum og verður tilboða leitað í þá. Gera má ráð fyrir að skipið geti hafið siglingar fljótlega á nýju ári.
Í brúnni á Sæfara. Kristján L. Möller samgönguráðherra í skipstjórastólnum. Með honum eru Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri, Eíríkur Örn Víglundsson (til hægri) og Guðmundur Víglundsson frá Vélsmiðju Orms og Víglundar. | |||