Loftslagsþing Sameinuðu þjóðanna hófst á Balí í dag
Þrettánda Loftslagsþing aðildarríkja Rammasamnings Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar hófst á Balí í Indónesíu í dag og stendur til 14. desember. Fulltrúar 180 ríkja sitja fundinn ásamt fulltrúum alþjóðastofnana, félagasamtaka og fjölmiðla.
Hægt er að fylgjast með vefútsendingum frá þinginu og nálgast upplýsingar um gang þess á heimasíðu rammasamningsins.
Vonast er til að í Balí verði lagður grunnur að samkomulagi um hvað taki við þegar Kyoto-bókunin um takmarkanir á losun gróðurhúsalofttegunda fellur úr gildi í lok árs 2012. Stefnt er að því að ljúka þessu samningaferli í Kaupmannahöfn árið 2009.
Þinginu lýkur á ráðherrafundi sem hefst 12. desember. Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra mun sækja ráðherrafundinn fyrir hönd Íslands. Aðrir í sendinefnd Íslands á þinginu eru Magnús Jóhannesson, ráðuneytisstjóri umhverfisráðuneytisins, Anna Kristín Ólafsdóttir, aðstoðarkona umhverfisráðherra, Hugi Ólafsson, skrifstofustjóri í umhverfisráðuneytinu, Stefán Einarsson, sérfræðingur í umhverfisráðuneytinu, Sveinn Þorgrímsson úr iðnaðarráðuneytinu og Bjarni Sigtryggsson úr utanríkisráðuneytinu.
Auk þeirra sækja fundinn þeir Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, Björgólfur Thorsteinsson, formaður Landverndar og Pétur Reimarsson frá Samtökum Atvinnulífsins.
Rammasamningur Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar var samþykktur í Ríó de Janeiró árið 1992. Markmið hans er að koma í veg fyrir hættulega röskun á loftslagskerfinu af mannavöldum, og tryggja þannig að matvælaframleiðslu í heiminum verði ekki stefnt í hættu og að efnahagsþróun geti haldið áfram á sjálfbæran máta. Jafnframt er það markmið samningsins að stuðla að alþjóðlegri samvinnu um að auðvelda félagslega og efnahagslega aðlögun að loftslagsbreytingum.
Kyoto-bókunin var samþykkt árið 1997 sem viðbót við rammasamninginn. Samkvæmt henni eru sett bindandi markmið um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda á tímabilinu 2008-2012.