Nýjar nefndir um fiskeldi
Fréttatilkynning um nýjar nefndir um fiskeldi
Sjávarútvegsráðherra hefur skipað tvær nýjar nefndir um fiskeldismál. Annars vegar er það nefnd um aðgerðir til eflingar þorskeldis hér á landi. Nefndinni er sérstaklega ætlað að kanna möguleika á byggingu og starfrækslu seiðaeldisstöðvar sem þjónað gæti allri matfiskframleiðslu í landinu. Nefndin mun skila ráðherra áfangaskýrslu í mars nk.
Í nefndinni eiga sæti:
Kristinn Hugason búfjárkynbóta- og stjórnsýslufræðingur í sjávarútvegsráðuneytinu, formaður.
Eggert B. Guðmundsson forstjóri HB Granda.
Jónas Jónasson framkvæmdastjóri Stofnfisks.
Kristján G. Jóakimsson vinnslu- og markaðsstjóri Hraðfrystihússins Gunnvarar.
Ólafur Halldórsson fiskifræðingur og fyrrverandi framkvæmdastjóri Fiskeldis Eyjafjarðar.
Hins vegar er það nefnd sem kanni forsendur kræklingaræktarinnar. Þeirri nefnd er ætlað að kanna stöðu greinarinnar og möguleika hennar, m.t.t. bæði líffræðilegra og rekstarlegra forsendna og umhverfisþátta. Er nefndinni ætlað að skila greinargerð til ráðherra og koma jafnframt með tillögur að þeim aðgerðum sem hægt væri að grípa til hjá hinu opinbera til að treysta almennar rekstarforsendur greinarinnar.
Í nefndinni eiga sæti:
Haukur Oddsson verkfræðingur, framkvæmdastjóri Borgunar hf., formaður.
Ásta Ásmundsdóttir verkefnisstjóri hjá Matís ohf.
Guðrún Þórarinsdóttir sérfræðingur hjá Hafrannsóknastofnuninni.
Jón Baldvinsson frá Skelrækt – samtökum kræklingaræktenda.
Kristinn Hugason stjórnsýslufræðingur hjá sjávarútvegsráðuneytinu.
Sjávarútvegsráðuneytinu 7. desember 2007