Hoppa yfir valmynd
11. desember 2007 Matvælaráðuneytið

Saga baráttunnar gegn uppblæstri Íslands í 100 ár

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Í ár hefur þess verið minnst að eitt hundrað ár eru liðin frá upphafi skipulegs landgræðslustarfs hér á landi en engin þjóð virðist hafa starfað lengur samfellt að landgræðslu og stöðvun jarðvegseyðingar en Íslendingar. Í tilefni þessara tímamóta hefur saga landgræðslustarfs á Íslandi verið tekin saman af Friðriki G. Olgeirssyni sagnfræðingi og gefin út af Landgræðslunni. Á fundi sem haldin var í tilefni af útgáfu bókarinnar Sáðmenn sandanna í Þjóðmenningarhúsinu tók Einar Kristinn Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við eintaki af bókinni frá Sveini Runólfssyni landgræðslustjóra ásamt Níelsi Árna Lund, skrifstofustjóra í landbúnaðarráðuneytinu. (Myndina tók Sigurður Bogi).



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta