Erfðanefnd landbúnaðarins
Samkvæmt ákvæðum 16. gr. laga nr. 70/1998, með síðari breytingum, skal landbúnaðarráðherra skipa sjö menn og jafnmarga til vara í erfðanefnd landbúnaðarins til þriggja ára í senn að fengnum tilnefningum frá eftirtöldum aðilum: Bændasamtökum Íslands, Skógrækt ríkisins, Veiðimálastofnun, Náttúrufræðistofnun Íslands og Landbúnaðarháskóla Íslands. Ráðherra skipar formann nefndarinnar án tilnefningar.
Núverandi nefnd er skipuð 4. janúar 2010.
Helstu verkefni nefndarinnar eru:
að annast samráð innanlands um verðveislu erfðaauðlinda í landbúnaði,
að hvetja til rannsókna á sviði erfðaauðlinda í landbúnaði,
að stuðla að miðlun þekkingar um erfðaauðlindir og gildi þeirra, jafnt með kennslu sem upplýsingagjöf til almennings,
að veita hagsmunaaðilum og stjórnvöldum ráðgjöf um varðveislu og nýtingu erfðaauðlinda í landbúnaði,
að annast samskipti við erlenda aðila á þessu sviði í samstarfi við tengiliði Íslands hjá alþjóðastofnunum.
Nefndina skipa:
- Skúli Skúlason, rektor, Hólum sem jafnframt er formaður, skipaður án tilnefningar.
- Áslaug Helgadóttir, prófessor og
- Emma Eyþórsdóttir, dósent, tilnefndar af Landbúnaðarháskóla Íslands.
- Jón Viðar Jónmundsson ráðunautur, tilnefndur af Bændasamtökum Íslands.
- Trausti Baldursson, líffræðingur, tilnefndur af Náttúrufræðistofnun Íslands.
- Aðalsteinn Sigurgeirsson, forstöðumaður Mógilsá, tilnefndur af Skógrækt ríkisins.
- Sigurður Már Einarsson, fiskifræðingur, tilnefndur af Veiðimálastofnun.
Varafulltrúar eru eftirfarandi í sömu röð:
- Sigríður Bjarnadóttir, ráðunautur, Hólsgerði, 601 Akureyri.
- Jón Hallsteinn Hallsson, lektor og
- Þorvaldur Kristjánsson, sérfræðingur, Landbúnaðarháskóla Íslands.
- Magnús Ágústsson, ráðunautur, Bændasamtökum Íslands.
- Svenja Neele Verena Auhage, líffræðingur, Náttúrufræðistofnun Íslands
- Hrefna Jóhannesdóttir, skógfræðingur, Skógrækt ríkisins.
- Eik Elfarsdóttir, líffræðingur, Veiðimálastofnun.