Stjórn Vesturlandsskóga
Samkvæmt 5. gr. laga nr. 95/2006 um landshlutabundin skógræktarverkefni skal landbúnaðarráðherra skipa þriggja manna stjórn fyrir hvert landshlutaverkefni til fjögurra ára í senn. Skal einn stjórnarmanna tilnefndur af félagi skógarbænda á viðkomandi svæði, annar af Skógrækt ríkisins og sá þriðji skipaður án tilnefningar.
Stjórnin hefur á hendi yfirstjórn verkefnisins og samþykkir starfs- og fjárhagsáætlanir þess. Hún ræður framkvæmdastjóra sem annast daglegan rekstur. Skógrækt ríkisins veitir aðstoð og faglegar leiðbeiningar við verkefnin. Landbúnaðarráðherra setur stjórnum landshlutaverkefnanna starfsreglur.
Stjórnin er lögbundin og var skipuð þann 27. september 2006 og mun starfa til 27. september 2010.
Stjórnarmeðlimir eru:
Guðbrandur Brynjúlfsson, formaður, skipaður af landbúnaðarráðherra.
Birgir Hauksson, skógarvörður á Vesturlandi, tilnefndur af Skógrækt ríkisins.
Þórarinn Svavarsson, tilnefndur af félagi skógarbænda á Vesturlandi.