Verðlagsnefnd búvara
Verðlagsnefnd búvara starfar skv. IV. kafla laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum
Hún er skipuð sex mönnum og ákveður afurðaverð til búvöruframleiðenda og verð búvara í heildsölu.
Samtök launþega tilnefna tvo fulltrúa í nefndina. Skal annar þeirra tilnefndur af stjórn Bandalags starfsmanna ríkis og bæja og hinn af stjórn Alþýðusambands Íslands. Noti annar aðilinn ekki tilnefningarrétt sinn færist réttur hans til hins. Stjórn Bændasamtaka Íslands og stjórnir búgreinasamtaka, sem hlotið hafa viðurkenningu skv. 4. gr. og starfa fyrir búgreinafélög þeirra afurða sem verðlagðar eru hverju sinni, tilnefna tvo fulltrúa í nefndina sameiginlega. Skal annar þeirra tilnefndur til að fjalla eingöngu um verðmyndun til framleiðenda. Skal hann víkja úr nefndinni fyrir fulltrúa samtaka afurðastöðva í nefndinni þegar fjallað er um verðmyndun hjá afurðastöðvum. Samtök afurðastöðva fyrir búvörur tilnefna tvo fulltrúa í nefndina. Skulu þeir tilnefndir þannig að í nefndinni starfi hverju sinni fulltrúar frá þeirri vinnslugrein sem um er rætt hverju sinni. Annar þessara fulltrúa skal tilnefndur til að starfa aðeins í nefndinni þegar nefndin fjallar um verðmyndun hjá afurðastöðvum og kemur í stað fulltrúa framleiðenda sem víkur sæti. Landbúnaðarráðherra tilnefnir einn fulltrúa í nefndina og er hann formaður hennar.
Varamenn skulu tilnefndir á sama hátt og aðalmenn. Ákvarðanir í nefndinni skulu teknar með einföldum meiri hluta atkvæða. Komi upp jöfn staða atkvæða sker atkvæði formanns úr um niðurstöðu.
Tilnefningu fulltrúa í verðlagsnefnd skal lokið 15. júní ár hvert. Nú notar einhver aðili ekki rétt sinn til tilnefningar og skal landbúnaðarráðherra þá tilnefna mann í nefndina í stað samtaka framleiðenda og samtaka afurðastöðva en félagsmálaráðherra á sama hátt í stað samtaka launþega. Nefndin skal fullskipuð 1. júlí ár hvert.
Hagstofa Íslands og Hagþjónusta landbúnaðarins skulu vera verðlagsnefnd til aðstoðar.
Aðalmenn:
Ólafur Friðriksson fulltrúi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, formaður
Björn Snæbjörnsson fulltrúi Alþýðusambands Íslands
Elín Björg Jónsdóttir fulltrúi Bandalags starfsmanna ríkis og bæja
Haraldur Benediktsson, fulltrúi Bændasamtaka Íslands
Pálmi Vilhjálmsson, fulltrúi Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði
Guðrún Sigurjónsdóttir, fulltrúi Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði
Sigurður Loftsson, fulltrúi Bændasamtaka Íslands
Varamenn:
Einar Sigurðsson, fulltrúi Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði
Matthías Kjeld, fulltrúi Alþýðusambands Íslands
Þuríður Einarsdóttir, fulltrúi Bandalags starfsmanna ríkis og bæja
Sigurgeir Sindir Sigurgeirsson, fulltrúi Bændasamtaka Íslands
Guðný Helga Björnsdóttir, fulltrúi Bændasamtaka Íslands
Ritari:
Kristín Sigfúsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu