Yfirmatsnefnd skv. ábúðarlögum
Samkvæmt 2. mgr. 7. gr. laga nr. 21/2000 um breytingu á ábúðarlögum, nr. 64/1976, með síðari breytingum skal landbúnaðarráðherra skipa þrjá menn í yfirmatsnefnd fyrir landið í heild til fjögurra ára í senn og þrjá menn til vara með sama hætti.
Skipunartími er 7. mars 2005 til 7. mars 2009.
Nefndina skipa:
Tilnefndir af Hæstarétti;
Friðgeir Björnsson, héraðsdómari, formaður, og varamaður hans er Arngrímur Ísberg héraðsdómari.
Tilnefndir af landbúnaðarráðherra;
Grétar Einarsson, sviðsstjóri, Hvanneyri og varamaður hans er Eiríkur Blöndal, verkfræðingur, Jaðri.
Tilnefndir af Bændasamtökum Íslands;
Ólafur Vagnsson, ráðunautur, Akureyri og varamaður hans er Stefán Tryggvason, Þórisstöðum.