Umsækjendur um stöðu forstjóra Tryggingastofnunar ríkisins
Umsóknarfrestur um embætti forstjóra Tryggingastofnunar ríkisins rann út 15. janúar sl. Félags- og tryggingamálaráðuneytinu bárust fimm umsóknir um stöðuna.
Umsækjendur eru:
- Arnþór Helgason blaðamaður.
- Guðmundur Kjartansson viðskiptafræðingur, MBA.
- Jón Sæmundur Sigurjónsson skrifstofustjóri.
- Sigríður Lillý Baldursdóttir, settur forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins.
- Þórey S. Þórðardóttir forstöðumaður.
Félags- og tryggingamálaráðherra skipar í stöðuna að fenginni tillögu stjórnar Tryggingastofnunar ríkisins, sbr. 5. gr. laga um almannatryggingar, nr. 100/2007, með síðari breytingum.