Hoppa yfir valmynd
26. janúar 2008 Utanríkisráðuneytið

Undirritun fríverslunarsamnings milli EFTA ríkjanna og Kanada

Frá undirritun fríverslunarsamnings EFTA og Kanada
Frá undirritun fríverslunarsamnings EFTA og Kanada í Davos

Í dag, 26. janúar, undirritaði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, fyrir Íslands hönd fríverslunarsamning milli EFTA ríkjanna og Kanada. Undirritunin fór fram í Davos í Sviss. Samningurinn mun öðlast gildi og koma til framkvæmda þegar hann hefur verið fullgiltur af EFTA ríkjunum og Kanada. Utanríkisráðherra hefur hvatt til þess að fullgildingarferlinu ljúki sem fyrst.

Fríverslunarsamningur EFTA-ríkjanna og Kanada nær til vöruviðskipta og samkvæmt honum verður full fríverslun með íslenskar iðnaðarvörur frá gildistöku. Í samningnum eru ákvæði um að taka upp viðræður um þjónustuviðskipti innan þriggja ára. Samhliða fríverslunarsamningnum gerðu EFTA-ríkin tvíhliða landbúnaðarsamninga við Kanada, sem eru sams konar og aðrir samningar sem gerðir hafa verið í tengslum við fyrri fríverslunarsamninga.

Samningurinn er hagstæður fyrir Ísland. Hann hefur í för með sér niðurfellingu tolla á vörum sem Ísland framleiðir og flytur út. Sem dæmi má nefna sjávarafurðir, útivistarfatnað, fiskikör og aðrar vörur úr plasti, vogir, vélar og tæki. Í staðinn veitir Ísland Kanada tollfrjálsan aðgang fyrir iðnaðarvörur og ákveðnar landbúnaðarvörur.

Samningurinn mun liðka fyrir enn frekari útrás íslenskra fyrirtækja á Kanadamarkað. Í því sambandi má geta að á síðasta ári var áritaður loftferðasamningur milli ríkjanna, sem öðlaðist gildi frá sama tíma. Samningurinn veitir íslenskum flugrekendum mjög víðtæk réttindi til áætlunarflugs með farþega, farangur, farm og póst til Kanada.

Ennfremur undirritaði utanríkisráðherra í dag fyrir Íslands hönd yfirlýsingu milli EFTA ríkjanna og Indlands um að hefja fríverslunarviðræður milli ríkjanna. Á síðasta ári luku EFTA ríkin og Indland könnunarviðræðum þar sem niðurstaðan var sú að mælt var með því að hefja fríverslunarviðræður milli ríkjanna sem nái bæði til viðskipta með vörur og þjónustu.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta