Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar-desember 2007
Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir árið 2007 liggur nú fyrir. Handbært fé frá rekstri nam tæpum 61 ma.kr. sem er 4,7 ma.kr. lakari útkoma en árið á undan. Hreinn lánsfjárjöfnuður er neikvæður um 2,1 ma.kr. samanborið við 25 ma.kr. lánsfjárhalla árið 2006. Fjármunahreyfingar námu 63 ma.kr. og skýrast af kaupum á eignarhluta í Landsvirkun að fjárhæð 30,3 ma.kr. og eiginfjárframlagi til Seðlabanka Íslands að fjárhæð 44 ma.kr. Á móti því vegur sala eigna og innheimta veittra lána.
Sjóðstreymi ríkissjóðs janúar – desember 2003– 2007
Í milljónum króna |
|||||
|
2003 |
2004 |
2005 |
2006 |
2007 |
Innheimtar tekjur |
259 783 |
280 696 |
399 289 |
381 336 |
452 673 |
Greidd gjöld |
268 714 |
280 382 |
308 382 |
314 716 |
369 583 |
Tekjujöfnuður |
-8 931 |
315 |
90 905 |
66 619 |
83 090 |
Söluhagn. af hlutabr. og eignahl. |
-10 177 |
- |
-57 605 |
- 384 |
-6 170 |
Breyting viðskiptahreyfinga |
9 836 |
- 607 |
-1 286 |
- 516 |
-15 962 |
Handbært fé frá rekstri |
-9 272 |
- 292 |
32 014 |
65 719 |
60 958 |
Fjármunahreyfingar |
21 115 |
22 700 |
49 874 |
-91 154 |
-63 102 |
Hreinn lánsfjárjöfnuður |
11 843 |
22 408 |
81 888 |
-25 435 |
-2 144 |
Afborganir lána |
-30 702 |
-32 477 |
-62 305 |
-46 097 |
-33 837 |
Innanlands |
-18 252 |
-7 291 |
-14 596 |
-23 223 |
-22 505 |
Erlendis |
-12 450 |
-25 186 |
-47 709 |
-22 873 |
-11 332 |
Greiðslur til LSR og LH |
-7 500 |
-7 500 |
-5 482 |
-4 000 |
-12 500 |
Lánsfjárjöfnuður, brúttó |
-26 359 |
-17 569 |
14 101 |
-75 531 |
-48 481 |
Lántökur |
24 749 |
25 867 |
10 234 |
115 713 |
58 939 |
Innanlands |
28 334 |
9 740 |
10 234 |
25 892 |
58 754 |
Erlendis |
-3 584 |
16 127 |
- |
89 821 |
185 |
Breyting á handbæru fé |
-1 610 |
8 298 |
24 335 |
40 182 |
10 457 |
Innheimtar tekjur ríkissjóðs árið 2007 námu 452,7 ma.kr. sem er 18,7% aukning frá fyrra ári. Þar af námu skatttekjur og tryggingagjöld 395,7 ma.kr. sem er 11,7% aukning frá fyrra ári og samsvarar raunaukningu um 6,4% miðað við hækkun almenns verðlags. Aðrar rekstrartekjur aukast um 43,2% en þær skýrast einkum af vaxtatekjum og sölu vöru og þjónustu.
Skattar á tekjur og hagnað námu 144,6 ma.kr. sem nemur 14,6% aukningu frá árinu 2006. Þar af vegur tekjuskattur einstaklinga mest og nam hann 84,1 ma.kr. og jókst um 7,5% frá fyrra ári. Tekjuskattur lögaðila nam 35,4 ma.kr. og var vöxturinn hóflegur á árinu, eða sem samsvarar 12,7%, eftir mjög mikinn vöxt í tvö ár þar á undan. Skattur af fjármagnstekjum nam 25,2 ma.kr. og jókst um 51,7% á árinu. Eignarskattar jukust um 27,7% á árinu og námu 11,7 ma.kr., þar af námu stimpilgjöld 9,3 ma.kr.
Innheimta veltuskatta gefur nokkuð góða mynd af þróun innlendrar eftirspurnar. Hún nam 191,8 ma.kr. á sl. ári og jókst um 9,2% frá fyrra ári eða sem nemur 4% að raunvirði eftir að tekið hefur verið tillit til hækkunar vísitölu neysluverðs. Stærsti hluti veltuskatta eru tekjur af virðisaukaskatti sem nam 135,4 ma.kr. og jókst um 10,6% á milli ára eða 5,3% að raunvirði. Áfengis- og tóbaksgjald og fleiri vörugjöld fylgdu verðlagsþróun að mestu. Vörugjöld af ökutækjum jukust um 2,4% að raunvirði og olíugjaldið um 6% en vörugjöld af bensíni drógust saman um 2,9% að raunvirði.
Af öðru má nefna að tekjur vegna tolla og aðflutningsgjalda jukust um 26,9% á milli ára og námu 5,3 ma.kr. og innheimt tryggingargjöld jukust um 5,2% og námu 39,2 ma.kr. Þá voru tekjur af sölu eigna alls 20 ma.kr. á árinu en þar af voru bókfærðir 12,8 ma.kr. í desember vegna sölu mannvirkja á fyrrum varnarsvæðinu við Keflavíkurflugvöll.
Tekjur ríkissjóðs janúar - desember 2005–2007
|
Milljónir króna |
|
Breyting frá fyrra ári, % |
||||
|
2005 |
2006 |
2007 |
|
2005 |
2006 |
2007 |
Skatttekjur og tryggingagjöld |
314 820 |
354 209 |
395 666 |
|
20,7 |
12,5 |
11,7 |
Skattar á tekjur og hagnað |
101 341 |
126 192 |
144 637 |
|
22,8 |
24,5 |
14,6 |
Tekjuskattur einstaklinga |
69 056 |
78 228 |
84 101 |
|
10,3 |
13,3 |
7,5 |
Tekjuskattur lögaðila |
15 384 |
31 369 |
35 366 |
|
40,9 |
103,9 |
12,7 |
Skattur á fjármagnstekjur |
16 901 |
16 595 |
25 170 |
|
88,3 |
-1,8 |
51,7 |
Eignarskattar |
14 906 |
9 172 |
11 712 |
|
23,7 |
-38,5 |
27,7 |
Skattar á vöru og þjónustu |
161 210 |
175 692 |
191 834 |
|
20,4 |
9,0 |
9,2 |
Virðisaukaskattur |
111 205 |
122 400 |
135 381 |
|
22,1 |
10,1 |
10,6 |
Vörugjöld af ökutækjum |
10 250 |
10 230 |
11 005 |
|
68,8 |
-0,2 |
7,6 |
Vörugjöld af bensíni |
8 783 |
8 995 |
9 168 |
|
5,6 |
2,4 |
1,9 |
Skattar á olíu |
4 015 |
6 553 |
7 292 |
|
-31,1 |
63,2 |
11,3 |
Áfengisgjald og tóbaksgjald |
10 560 |
11 371 |
11 949 |
|
3,4 |
7,7 |
5,1 |
Aðrir skattar á vöru og þjónustu |
16 397 |
16 142 |
17 040 |
|
32,4 |
-1,6 |
5,6 |
Tollar og aðflutningsgjöld |
3 474 |
4 170 |
5 292 |
|
13,8 |
20,0 |
26,9 |
Aðrir skattar |
1 641 |
1 758 |
3 024 |
|
13,3 |
7,2 |
72,0 |
Tryggingagjöld |
32 249 |
37 226 |
39 167 |
|
16,2 |
15,4 |
5,2 |
Fjárframlög |
760 |
1 668 |
1 868 |
|
8,6 |
119,6 |
12,0 |
Aðrar tekjur |
25 189 |
24 506 |
35 104 |
|
34,0 |
-2,7 |
43,2 |
Sala eigna |
58 519 |
953 |
20 035 |
|
- |
- |
- |
Tekjur alls |
399 288 |
381 336 |
452 673 |
|
42,2 |
-4,5 |
18,7 |
Greidd gjöld ríkissjóðs námu 369,6 ma.kr. á árinu 2007 og jukust um 54,9 ma.kr. milli ára eða rúm 17%. Almenn opinber þjónusta nam 52,3 ma.kr. og var hækkunin 38,2% milli ára. Útgjöld til almannatrygginga- og velferðarmála nema 86,6 ma.kr og hækka um rúm 18% frá fyrra ári. Þar undir falla lífeyristryggingar sem nema 38,7 ma.kr. og hækka um 7 ma.kr. milli ára og einnig barnabætur sem námu tæpum 8 ma.kr. og jukust um 2,1 ma.kr. Fæðingarorlofsgreiðslur hækkuðu um 1,5 ma.kr og námu 7,9 ma.kr. Útgjöld til efnahags- og atvinnumála nema 52,8 ma.kr. og er aukningin 9 ma.kr. milli ára. Útgjöld til heilbrigðismála voru 93,3 ma.kr. og jukust um 8,5 ma.kr. Útgjöld til menntamála nema 37,8 ma.kr. og er aukningin á milli ára 3,3 ma.kr.
Gjöld ríkissjóðs janúar - desember 2005–2007
|
Milljónir króna |
|
Breyting frá fyrra ári, % |
|||
|
2005 |
2006 |
2007 |
|
2006 |
2007 |
Almenn opinber þjónusta |
... |
37 817 |
52 259 |
|
... |
38,2 |
Þar af vaxtagreiðslur |
... |
9 884 |
17 090 |
|
... |
72,9 |
Varnarmál |
... |
606 |
977 |
|
... |
61,2 |
Löggæsla, réttargæsla og öryggismál |
... |
13 784 |
15 802 |
|
... |
14,6 |
Efnahags- og atvinnumál |
... |
43 708 |
52 759 |
|
... |
20,7 |
Umhverfisvernd |
... |
3 356 |
4 040 |
|
... |
20,4 |
Húsnæðis- skipulags- og veitumál |
... |
402 |
544 |
|
... |
35,2 |
Heilbrigðismál |
... |
84 836 |
93 314 |
|
... |
10,0 |
Menningar-, íþrótta- og trúmál |
... |
13 890 |
15 906 |
|
... |
14,5 |
Menntamál |
... |
34 539 |
37 837 |
|
... |
9,5 |
Almannatryggingar og velferðarmál |
... |
73 294 |
86 628 |
|
... |
18,2 |
Óregluleg útgjöld |
... |
8 484 |
9 518 |
|
... |
12,2 |
Gjöld alls |
308 382 |
314 716 |
369 583 |
|
2,1 |
17,4 |
Lánsfjárþörf ríkissjóðs nam 48,5 ma.kr. á árinu 2007 en hrein lánsfjárþörf var 2,1 ma.kr. Afborganir lána voru 33,8 ma.kr., þar af hefur 11,3 ma.kr. verið varið til uppgreiðslu erlendra lána. Heildarlántökur tímabilsins nema 58,9 ma.kr. og er allt tekið að láni innanlands. Lántökurnar skýrast af skuldabréfaútgáfu í tengslum við kaup ríkisins á 50% hlut Reykjavíkurborgar og Akureyrarbæjar í Landsvirkjun að fjárhæð 26,9 ma.kr. og útgáfu á ríkisbréfum og ríkisvíxlum.