Hoppa yfir valmynd
18. febrúar 2008 Dómsmálaráðuneytið

Vefsíða um framkvæmd samstarfs Norðmanna og Íslendinga um þyrlukaup

Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra og Knut Storberget, dómsmálaráðherra Noregs, skrifuðu undir samkomulag um samstarf Íslands og Noregs um kaup og rekstur nýrra langdrægra björgunarþyrla 30. nóvember 2007. Nú hafa Norðmenn opnað vefsíðu,
www.nawsarh.dep.no
Vefsíða um framkvæmd samstarfs Íslands og Norðmanna um þyrlukaup, www.nawsarh.dep.no.

Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra og Knut Storberget, dómsmálaráðherra Noregs, skrifuðu undir samkomulag um samstarf Íslands og Noregs um kaup og rekstur nýrra langdrægra björgunarþyrla 30. nóvember 2007. Nú hafa Norðmenn opnað vefsíðu, www.nawsarh.dep.no, um framkvæmd þessa samstarfs, sem þeir nefna NAWSARH-verkefnið. Á síðunni verður unnt að fylgjast með framvindu þess. Verkefnið miðast við að Ísland kaupi þrjár nýjar björgunarþyrlur og Noregur tíu til tólf.

Við framkvæmd verkefnisins verður fylgt reglum um opinber innkaup hér á landi og á Evrópska efnahagssvæðinu. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið leiðir verkefnið á Íslandi í samráði við Ríkiskaup, fjármálaráðuneyti og Landhelgisgæslu Íslands.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta