Embætti skólameistara Verkmenntaskóla Austurlands
Menntamálaráðherra hefur skipað Olgu Lísu Garðarsdóttur í embætti skólameistara Verkmenntaskóla Austurlands til fimm ára frá 1. mars 2008 að telja. Þrjár umsóknir bárust um embættið sem sendar voru skólanefnd Verkmenntaskóla Austurlands til umsagnar skv. 2. mgr. 11. gr. laga um framhaldsskóla nr. 80/1996. Skólanefndin mælti í umsögn sinni til menntamálaráðherra einróma með því að Olgu Lísu Garðarsdóttur yrði veitt embættið.