Laust embætti
Embætti sýslumannsins í Kópavogi er laust til umsóknar.
Um hæfisskilyrði sýslumanna gilda lög um framkvæmdarvald ríkisins í héraði nr. 92 frá 1989 með áorðnum breytingum. Dómsmálaráðherra skipar í embættið frá og með 1. júní 2008 til fimm ára í senn.
Umsóknir berist dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, Skuggasundi, 150 Reykjavík, eigi síðar en hinn 25. mars 2008.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu,
4. mars 2008.