Hoppa yfir valmynd
11. mars 2008 Matvælaráðuneytið

Skipun forstöðumanns Verðlagsstofu skiptaverðs

skipun forstöðumanns verðlagsstofu skiptaverðs 11 mars
skipun forstöðumanns verðlagsstofu skiptaverðs 11 mars

Fréttatilkynning frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti
nr. 12/2008

Skipun forstöðumanns Verðlagsstofu skiptaverðs

Einar Kristinn Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur skipað Guðrúnu Arndísi Jónsdóttur forstöðumann Verðlagsstofu skiptaverðs frá 1. apríl 2008 til næstu fimm ára.

Guðrún Arndís lauk B.Sc námi í viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst árið 2002 og M.Sc í viðskiptafræði frá sama skóla árið 2007. Lokaverkefni hennar til M.Sc gráðu fjallar um Launakerfi íslenskra sjómanna. Hún hefur 14 ára starfsreynslu úr sjávarútvegi og hefur verið aðstoðarmaður framkvæmdastjóra útgerðarsviðs Samherja frá 1996.

Hlutverk Verðlagsstofu skiptaverðs er m.a. að fylgjast með fiskverði og uppgjöri á aflahlut sjómanna og stuðla að réttu og eðlilegu uppgjöri á aflahlut þeirra. Birting upplýsinga um fiskverð er mikilvægur þáttur í starfsemi stofunnar.

skipun forstöðumanns verðlagsstofu skiptaverðs 11 mars Á myndinni eru Arndís Steinþórsdóttir skrifstofustjóri, Einar Kristinn Guðfinnsson, Guðrún Arndís Jónsdóttir og Sigurgeir Þorgeirsson ráðuneytisstjóri.

 

 

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu

11. mars 2008



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta