Akstursgjald ríkisstarfsmanna - auglýsing nr. 1/2008
Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið akstursgjald í aksturssamningum ríkisstarfsmanna og ríkisstofnana sem hér segir:
Almennt gjald
- Fyrstu 10.000 km - kr. 76,00 pr. km
- Frá 10.000 til 20.000 km - kr. 68,50 pr. km
- Umfram 20.000 km - kr. 61,00 pr. km
Við útreikning á sérstöku gjaldi skal bæta 15% álagi á almenna gjaldið og við útreikning á torfærugjaldi skal bæta 45% álagi á almenna gjaldið.
Akstursgjald þetta gildir frá og með 1. apríl 2008. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 4/2007 dagsett 28. september 2007.
Vakin er athygli á því að auglýsingar ferðakostnaðarnefndar eru birtar á vefsíðu fjármálaráðuneytisins. Þar er auk þess að finna reglur nefndarinnar um greiðslu dagpeninga erlendis og greinargerð um forsendur útreikninga akstursgjalds og dagpeninga.
Veffangið er www.fjarmalaraduneyti.is/ferdakostn.html
Reykjavík, 17. mars 2008
Ferðakostnaðarnefnd