Konur og karlar á Íslandi 2008
Félags- og tryggingamálaráðuneytið hefur í samvinnu við Jafnréttisstofu og Hagstofu Íslands gefið út bæklinginn Konur og karlar á Íslandi 2008. Í bæklingnum er samantekt á helstu tölum um hlutfall kynjanna í ýmsum málaflokkum. Þar er meðal annars að finna upplýsingar um launamun og stöðu kynjanna á vinnumarkaði og í menntakerfinu. Þá eru einnig upplýsingar um mannfjölda, fjölskyldur og fæðingarorlof. Markmiðið er að varpa ljósi á stöðu jafnréttismála á Íslandi. Bæklingurinn hefur einnig verið gefin út á ensku.
Konur og karlar á Íslandi 2008 (PDF, 517KB)
Women and Men in Iceland 2008 (PDF, 88KB)