Innritun fatlaðra nemenda í framhaldsskóla 2008
Ákveðið hefur verið að innritun fatlaðra nemenda, sem óska eftir skólavist á starfsbrautum framhaldsskóla, fari fram fyrr en innritun almennt í framhaldsskóla. Þetta er gert til þess að skólarnir fái meira svigrúm til að vinna úr umsóknum og undirbúa komu viðkomandi nemenda. Upplýsingar um starfsbrautir er að finna á heimasíðum framhaldsskóla og hjá námsráðgjöfum og forsvarsmönnum starfsbrauta.
Einnig má finna upplýsingar í bæklingnum Nám að loknum grunnskóla sem hefur verið sendur til þeirra nemenda sem eru að ljúka grunnskólanámi. Ritið er aðgengilegt á vef ráðuneytisins menntamalaraduneyti.is.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um á eyðublöðum sem skólinn lætur þeim í té. Á umsóknareyðublaði skal einnig tilgreindur annar skóli til vara. Formleg svör um skólavist berast í júnímánuði.
Umsóknir um skólavist á starfsbrautum skulu hafa borist viðkomandi framhaldsskóla fyrir 15. maí nk.