Dagskrá ráðstefnu UT-dagsins 2008
Netríkið Ísland
Dagskrá UT-ráðstefnunnar 2008
Dagur upplýsingatækninnar verður haldinn 7. maí nk. Í tilefni dagsins stendur forsætisráðuneytið, í samvinnu við Skýrslutæknifélag Íslands, fyrir ráðstefnu undir yfirskriftinni Netríkið Ísland. Ráðstefnan verður haldin á Hilton Nordica, miðvikudaginn 7. maí kl. 13:00-16:15. Þar verður kynnt ný stefna ríkisstjórnarinnar um upplýsingasamfélagið og nokkur lykilverkefni sem unnið verður að á framkvæmdatíma stefnunnar. Skráning og frekari upplýsingar á (www.sky.is).
Þátttökugjald fyrir félagsmenn Ský er 11.900 kr.
Þátttökugjald fyrir utanfélagsmenn er 16.900 kr.
Þátttökugjald fyrir námsmenn gegn framvísun skólaskírteinis er 6.900 kr.
12:45 Skráning og afhending ráðstefnugagna
13:00 Ávarp
Geir H. Haarde, forsætisráðherra
13:15 Netríkið Ísland
Guðbjörg Sigurðardóttir, skrifstofustjóri í forsætisráðuneyti
13:35 Tryggur - bylting í þjónustu Tryggingastofnunar
Sigríður Lillý Baldursdóttir, forstjóri Tryggingastofnunar
Bragi L. Hauksson, verkefnastjóri rafrænnar stjórnsýslu hjá Tryggingastofnun
13:55 Staða verkefnis um rafræn skilríki
Haraldur Bjarnason, sérfræðingur í fjármálaráðuneyti
Rafræn skráning í fyrirtækjaskrá
Skúli Jónsson, forstöðumaður fyrirtækjaskrár RSK
14:15 Upplýsingatækni í menntun – næstu skref
Sigurður Davíðsson, sérfræðingur í menntamálaráðuneyti
14:35 Kaffi
14:55 Rafrænar sveitarstjórnarkosningar
Geir Ragnarsson, sérfræðingur í samgönguráðuneyti
Rafræn þjónusta sveitarfélaga
Álfheiður Eymarsdóttir þjónustustjóri Reykjavíkurborgar
15:15 Flutningstilkynningar milli landa með aðstoð rafrænna skilríkja
Þorsteinn Helgi Steinarsson, framkvæmdastjóri Ásverks ehf
Þorvarður Kári Ólafsson, skilríkja- og öryggissérfræðingur hjá Þjóðskrá
15:35 Persónulegt heilsufarsyfirlit og upplýsingamiðstöð heilbrigðismála
Gunnar Alexander Ólafsson, sérfræðingur, heilbrigðisráðuneyti.
15:55 Island.is 2012
Halla Björg Baldursdóttir, formaður verkefnisstjórnar um rafræna stjórnsýslu í forsætisráðuneyti
Rebekka Rán Samper, verkefnisstjóri Island.is í forsætisráðuneyti
16:15 Ráðstefnuslit
Ráðstefnustjóri er Guðfinna S. Bjarnadóttir alþingismaður.