Breytt útgáfuáætlun ritsins Þjóðarbúskapurinn 2008
Úr Vefriti fjármálaráðuneytisins 8. maí 2008 - þú getur gerst áskrifandi að vefritinu.
Á árinu 2008 verður ritið Þjóðarbúskapurinn gefið út þrisvar sinnum í stað fjögurra áður. Ritið er gefið út á íslensku og ensku.
Útgáfa endurskoðaðrar þjóðhagsspár fyrir árin 2008–2010 þann 24. júní 2008 fellur niður. Ný þjóðhagsspá fyrir árin 2008–2013 verður birt 1. október næstkomandi í samræmi við áður tilkynnta útgáfuáætlun.