Spor til framtíðar - menntun til sjálfbærni - málþing haldið 16. maí í Kennaraháskóla Íslands
Málþing um menntun til sjálfbærar þróunar í Kennaraháskóla Íslands.
Málþingið er haldið af umhverfisfræðsluráði, Kennaraháskóla Íslands og Háskólanum á Akureyri. Málþingið er ókeypis og öllum opið.
Málþing um menntun til sjálfbærar þróunar í Kennaraháskóla Íslands.
Efnt verður til málþings um menntun til sjálfbærrar þróunar í Kennaraháskólanum í Reykjavík næstkomandi föstudag. Það eru umhverfisfræðsluráð og menntamálaráðuneytið sem boða til málþingsins í samvinnu við rannsóknarhóp Kennaraháskólans og Háskólans á Akureyri. Rannsóknarhópurinn vinnur nú að rannsóknar- og þróunarverkefninu GETA til sjálfbærni - menntun til aðgerða.
- Inngangserindi málþingsins flytur Kennert Orlenius lektor frá Svíþjóð.
- Í málstofum munu kennarar í leik-, grunn- og framhaldsskólum og fulltrúar sveitafélaga og frjálsra félagasamtaka kynna og ræða um verkefni og aðgerðir sem stuðlað gætu að menntunar til sjálfbærrar þróunar. Í kjölfarið verða pallborðsumræður um hvernig sjálfbær þróun getur orðið viðmið í íslensku skólastarfi.
- Að endingu verður boðið upp á léttar veitingar.
Málþingið er opið öllum og aðgangur er ókeypis. Skráning fer fram á [email protected]
Dagskrá: Hefst í Skriðu, fyrirlestrarsal KHÍ | |||
---|---|---|---|
12:30–12:45 | Opnun – Arnór Guðmundsson, skrifstofustjóri skrifstofu menntamála. Menntamálaráðuneyti | ||
12:45–13:00 | Geta til sjálfbærni – menntun til aðgerða, Stefán Bergmann dósent við Kennaraháskóla Íslands | ||
13:00–13.45 | Education for Sustainable development. Values in education and education in values, Kennert Orlenius lektor við Högskolan Skövde í Svíþjóð. | ||
13:45–14:00 | Neytendavitund og menntun til sjálfbærrar þróunar: Evrópusamstarf um fræðslu og námsefnisgerð. Sjöfn Guðmundsdóttir Menntaskólanum við Sund. | ||
14:15–15:15 | Málstofur: Hvernig má útfæra menntun til sjálfbærrar þróunar? | ||
15:30–16:30 | Pallborðsumræður. Samantekt - hvernig getur sjálfbær þróun orðið viðmið í skólastarfi, undir stjórn Ingólfs Jóhannessonar prófessors við Háskólann á Akureyri. | ||
16:30– | Léttar veitingar og spjall. |