Jafnrétti kynjanna
Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur endurskipað kærunefnd jafnréttismála og Jafnréttisráð í samræmi við ný lög um jafna stöðu og rétt kvenna og karla, nr. 10/2008, sem tóku gildi 6. mars síðastliðinn.
Í bráðbirgðaákvæði með nýju lögunum er kveðið á um að ráðherra skuli skipa nýtt Jafnréttisráð og nýja kærunefnd jafnréttismála og hefur það nú verið gert. Formaður Jafnréttisráðs er Hildur Jónsdóttir og formaður kærunefndar jafnréttismála er Andri Árnason hrl.
Jafnréttisráð
Hlutverk Jafnréttisráðs er svo skilgreint í lögum: Jafnréttisráð skal starfa í nánum tengslum við Jafnréttisstofu og vera félags- og tryggingamálaráðherra og framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu til ráðgjafar við faglega stefnumótun í málum er tengjast jafnrétti kynjanna. Sérstök áhersla skal lögð á að jafna stöðu kynjanna á vinnumarkaði og samþættingu fjölskyldu- og atvinnulífs. Jafnréttisráð skal undirbúa jafnréttisþing í samráði við félags- og tryggingamálaráðherra, sbr. 10. gr., og leggja fyrir það skýrslu um störf sín.
Eftirtaldir eiga sæti í jafnréttisráði:
Skipuð án tilnefningar af félags- og tryggingamálaráðherra
Formaður: Hildur Jónsdóttir
Varaformaður: Mörður Árnason
Alþýðusamband Íslands, Bandalag háskólamanna og Bandalag starfsmanna ríkis og bæja
Aðalmenn: Maríanna Traustadóttir og Halldóra Friðjónsdóttir
Varamenn: Ísleifur Tómasson og Árni Stefán Jónsson
Fjármálaráðuneytið og Samtök atvinnulífisins
Aðalmenn: Hörður Vilberg og Björn Rögnvaldsson
Varamenn: Guðrún Björk Bjarnadóttir og Ágústa Hlín Gústafsdóttir
Femínistafélag Íslands, Kvenfélagasamband Íslands og Kvenréttindafélag Íslands
Aðalmenn: Una María Óskarsdóttir og Þorbjörg Inga Jónsdóttir
Varamaður: Silja Bára Ómarsdóttir
Samtök um kvennaathvarf og Stígamót
Aðalmaður: Guðrún Jónsdóttir
Varamaður: Sigþrúður Guðmundsdóttir
Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum
Aðalmaður: Arnar Gíslason
Varamaður: Irma Erlingsdóttir
Félag um foreldrajafnrétti
Aðalmaður: Lúðvík Börkur Jónsson
Varamaður: Stefán Guðmundsson
Samband íslenskra sveitarfélaga
Aðalmaður: Svandís Svavarsdóttir
Varamaður: Eiríkur Björgvinsson
Kærunefnd jafnréttismála
Verkefni kærunefndar jafnréttismála samkvæmt lögum er að taka erindi til meðferðar og kveða upp skriflegan úrskurð um hvort ákvæði jafnréttislaga hafi verið brotin. Niðurstöður kærunefndar sæta ekki kæru til æðra stjórnvalds.
Eftirtaldir eiga sæti í kærunefnd jafnréttismála:
- Andri Árnason hæstaréttarlögmaður, formaður,
- Ingibjörg Rafnar hæstaréttarlögmaður, varaformaður nefndarinnar, og
- Þórey S. Þórðardóttir héraðsdómslögmaður.
Varamenn:
- Björn L. Bergsson hæstaréttarlögmaður,
- Erla S. Árnadóttir hæstaréttarlögmaður og
- Jóhannes Karl Sveinsson hæstaréttarlögmaður.