Utanríkisráðherra sækir Eistland heim
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, átti í dag fund með Urmas Paet, utanríkisráðherra Eistlands, í opinberri heimsókn sinni þangað. Þau ræddu ýmis tvíhliða samskipti ríkjanna, samstarfið innan Atlantshafsbandalagsins, svæðisbundna samvinnu og samstarf ríkjanna á grundvelli EES-samningsins. Utanríkisráðherra þakkaði einarðan stuðning Eistlands við framboð Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, en Eistland hefur tekið beinan þátt í kosningabaráttu Íslands síðustu misseri.
Utanríkisráðherra flutti opnunarræðu, sem fulltrúi Norðurlandanna, á ráðstefnu í Tallinn sem helguð var auknum viðskiptatækifærum á Balkanskaga og samstarfi og viðskiptum Norðurlanda og Eystrasaltsríkja við það svæði.
Ingibjörg Sólrún heimsótti einnig eistneska þjóðþingið og átti fund með þingmönnum í vináttunefnd Eistlands og Íslands. Utanríkisráðherra var að auki gestur í morgunþætti eistneska ríkissjónvarpsins og svaraði fyrirspurnum fjölmiðla.
Loks kynnti utanríkisráðherra sér starfsemi varnarmiðstöðvar um netöryggi sem verið er að byggja upp í Tallinn að frumkvæði Eistlands innan vébanda Atlantshafsbandalagsins.