Ráðstefna um áætlanir Evrópusambandsins
Samband íslenskra sveitarfélaga stendur fyrir kynningu á áætlunum Evrópusambandsins á ráðstefnu 3. júní 2008 þar sem fjallað verður um möguleg sóknarfæri sveitarfélaga, landshlutasamtaka og atvinnuþróunarfélaga á sviði Evrópusamstarfs.
Ráðstefnan er haldin í samvinnu við landsskrifstofur áætlananna hér á landi og verður hún sérsniðin að þörfum sveitarfélaga, landshlutasamtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunarfélaga.
Ráðstefnan verður haldin á Grand hóteli í Reykjavík kl. 8.30–16.00 og er aðgangseyrir 2.000 krónur.
Skráning á ráðstefnuna er á vefsíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Nánari upplýsingar um ráðstefnuna (PDF, 82KB)