Nefnd um úthlutun þróunarfjárframlags til hrossaræktarinnar
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur ákveðið að endurskipa í fimm manna starfshóp þann sem sér um úthlutun 25. milljón króna þróunarfjárframlags til hrossaræktarinnar, sbr. lið 1.14 Átak í hrossarækt, undir lið 04-891 á fjárlögum; Sérstakar greiðslur í landbúnaði.
Starfshópnum er ætlað að standa að heildarúthlutun fjármuna þeirra er hér um ræðir, hann setji sér starfsreglur þar um, m.a. með skilgreiningu á styrkhæfum verkefnum, umsóknarferli og um mat bæði á umsóknum og vörðum sem marka skulu framgang hvers verkefnis.
Nefndina skipa:
- Kristinn Hugason formaður
- Bergur Jónsson aðalmaður
- Kristinn Guðnason aðalmaður
- Kristbjörg Eyvindsdóttir aðalmaður
- Sveinbjörn Sveinbjörnsson