Nr. 23/2008 - Ákvörðun um leyfilegan hámarksafla fiskveiðiárið 2008/2009
Fréttatilkynning frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti
Nr. 23/2008
Ákvörðun um leyfilegan hámarksafla fiskveiðiárið 2008/2009
Einar Kristinn Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur í dag tekið ákvörðun um leyfilegan heildarafla á næsta fiskveiðiári, 2008-2009.
Á meðfylgjandi töflu kemur fram hver leyfilegur hámarksafli í einstökum fisktegundum verður á komandi fiskveiðiári, skv. reglugerð sem gefin verður út á morgun. Þá sést til samanburðar heildaraflamark á yfirstandandi fiskveiðiári og hver tillaga Hafrannsóknastofnunarinnar er fyrir komandi fiskveiðiár. Þar má sjá að ekki verður um að ræða verulegar breytingar á leyfilegum heildarafla einstakra tegunda. Þorskaflinn verður hinn sami og á yfirstandandi fiskveiðiári, eða 130 þúsund tonn. Er það í samræmi við ákvörðun í fyrra sem byggðist á aflareglu sem samþykkt var í ríkisstjórninni þann 6. júlí á síðasta ári. Er þar gert ráð fyrir að á fiskveiðiárinu 2008/2009 muni leyfilegur þorskafli miðast við 20% afla úr viðmiðunarstofni, en þó þannig að tekið verði tillit til sveiflujöfnunar samkvæmt aflareglu fyrir yfirstandandi fiskveiðiár. Leyfilegur heildarafli í þorski verði þó ekki undir 130 þúsund tonnum á því fiskveiðiári.
Hvað aðrar tegundir áhrærir eru breytingar ekki miklar. Aflamark í ýsu og ufsa lækkar, en þó ekki jafn mikið og Hafrannsóknastofnunin leggur til, í ljósi sterkrar stöðu þessara stofna. Þá er aflamark lækkað í karfa um 7 þúsund tonn. Um lítils háttar aukningu er að ræða í aflamarki steinbíts, humars og skötusels, en aflamark all margra tegunda breytist ekki á milli ára. Aflamark í síld er um 20 þúsund tonnum meira en Hafrannsóknastofnunin leggur til, líkt og í fyrra. Staða síldarstofnsins er sterk og útbreiðslusvæði síldarinnar meira en áður. Gert er ráð fyrir að í haust fari fram frekari mæling á síldarstofninum.
Hafrannsóknastofnunin hefur á undanförnum árum veitt aðskilda ráðgjöf um gullkarfa og djúpkarfa og er svo einnig nú. Ekki eru forsendur til þess að úthluta aðskildu heildaraflamarki þessara tegunda að þessu sinni. Hins vegar verður settur á laggirnar starfshópur á vegum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins sem fær það hlutverk að leggja fram tillögur í þessum efnum og verður honum ætlað að skila áliti á næsta ári.
Þrátt fyrir tillögu Hafrannsóknastofnunarinnar um verulega lækkun aflmarks í grálúðu verður það óbreytt. Er skýringin sú að þrjár þjóðir koma að nýtingu grálúðustofnsins, Íslendingar, Grænlendingar og Færeyingar. Ekki hefur náðst samkomulag um grálúðuna á milli þjóðanna og því ljóst að einhliða lækkun grálúðúkvótans af okkar hálfu hefði einvörðungu þær afleiðingar að aflaheimildar okkar minnkuðu en aðrar þjóðir gætu aukið sinn hlut.
Framhjá því verður ekki litið að hinar litlu aflaheimildir í þorski munu hafa meiri áhrif á næsta fiskveiðiári en á því yfirstandandi. Þessu veldur meðal annars að geymsla aflamarks í þorski frá síðasta fiskveiðiári kom mönnum til góða á núverandi fiskveiðiári. Því verður ekki að heilsa á næsta fiskveiðiári. Geymslurétturinn eykur aðlögunarhæfni í sjávarútvegi og hagkvæmni í veiðunum, ekki síst við núverandi aðstæður. Þess vegna er að því stefnt að leggja fram frumvarp á komandi hausti sem eykur möguleika á geymslu veiðiheimilda á milli ára.
Ákvörðun heildaraflamarks fiskveiðiárið 2008/2009 (þús. tonn) | ||||||||
Ákv. heildaraflamarks | Tillaga Hafrannsókna- | Heildaraflamark | ||||||
2008/2009 | stofnunarinnar | 2007/2008 | ||||||
Þorskur | 130,0 | 124,0 | 130,0 | |||||
Ýsa | 93,0 | 83,0 | 100,0 | |||||
Ufsi | 65,0 | 50,0 | 75,0 | |||||
Steinbítur | 13,0 | 12,0 | 12,5 | |||||
Karfi | 50,0 | 40,0 | 57,0 | |||||
Grálúða | 15,0 | 5,0* | 15,0 | |||||
Sandkoli | 1,0 | *** | 1,5 | |||||
Skrápflúra | 1,0 | *** | 1,0 | |||||
Skarkoli | 6,5 | 5,0 | 6,5 | |||||
Þykkvalúra | 2,2 | 1,6 | 2,2 | |||||
Langlúra | 2,2 | 1,6 | 2,4 | |||||
Keila | 5,5 | 5,0* | 5,5 | |||||
Langa | 7,0 | 6,0* | 7,0 | |||||
Skötuselur | 3,0 | 2,5 | 2,5 | |||||
Humar | 2,2 | 2,2 | 1,9 | |||||
Síld | 150,0 | 131,0 | 150,0 | |||||
Úthafsrækja | 7,0 | 7,0** | 7,0 | |||||
*Að meðtöldum veiðum erlendra skipa | ||||||||
**Upphafskvóti | ||||||||
*** Aflamark verði ekki hærra en sem nemi þeim afla er ætla má að fáist sem aukaafli við aðrar veiðar. | ||||||||
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu,
1. júlí 2008