Umsækjendur um starf forstjóra Veðurstofu Íslands
Ellefu sóttu um starf forstjóra nýrrar stofnunar sem verður til við sameiningu Veðurstofu Íslands og Vatnamælinga Orkustofnunar. Hin nýja stofnun mun bera nafn Veðurstofu Íslands. Umsóknarfrestur rann út 11. júlí síðastliðinn en gert er ráð fyrir að forstjórinn hefji störf hinn 1. ágúst næstkomandi til að undirbúa starfsemi hinnar nýju stofnunar.
Eftirtaldir sóttu um starfið:
Ólafur Rögnvaldsson | Framkvæmdastjóri Reiknistofu í veðurfræði ehf. | |||||
Haraldur Ólafsson | Veðurfræðingur og prófessor við HÍ | |||||
Árni Snorrason | Forstöðumaður Vatnamælinga Orkustofnunar | |||||
Sólveig Þorvaldsdóttir | Ráðgjafarverkfræðingur hjá Rainrace ehf. | |||||
Steinunn S. Jakobsdóttir | Sviðsstjóri eðlisfræðisviðs Veðurstofu Íslands | |||||
Sigrún Karlsdóttir | Deildarstjóri spádeildar Veðurstofu Íslands | |||||
Þóranna Pálsdóttir | Forstöðumaður veðursviðs Veðurstofu Íslands | |||||
Conny Larsson | Dósent í veðurfræði við jarðvísindastofnun Uppsalaháskóla | |||||
Sverrir Jensson | Sjálfstætt starfandi við rannsóknir í veðurfræði og stærðfræði | |||||
Ísak Örn Sigurðsson | Sjálfstætt starfandi/ráðgjöf | |||||
Hulda Birna Baldursdóttir | Markaðsstjóri |