Evrópskur tungumáladagur 26. september 2008
Menntamálaráðuneytið hvetur skóla, aðrar fræðslustofnanir og hagsmunaaðila til að minnast Evrópsks tungumáladags hinn 26. september 2008 og vekja þannig með einhverjum hætti athygli á mikilvægi tungumálakunnáttu og símenntunar í tungumálum. Vakin er athygli á bæklingi með fjölmörgum hugmyndum að mögulegum verkefnum og aðgerðum á tungumáladeginum. Bæklinginn má nálgast á vef ráðuneytisins. Slóðin er www.menntamalaraduneyti.is/raduneyti/althjodlegt-samstarf eða menntagatt.is.Þar er einnig að finna frekari upplýsingar um tungumáladaginn. Jafnframt er bent á vef Evrópuráðsins vegna tungumáladagsins. Slóðin er www.coe.int/edl. Í ráðuneytinu má einnig nálgast íslenska útgáfu veggspjalds frá Evrópuráðinu.
Að frumkvæði Evrópuráðsins hefur tungumáladagsins verið minnst frá árinu 2001 með ýmsu móti í Evrópulöndum, þ.m.t. á Íslandi. Markmið Evrópska tungumáladagsins eru einkum eftirfarandi:
- Vekja athygli á mikilvægi tungumálakunnáttu og fjölbreytts tungumálanáms til að auka fjöltyngi og skilning á ólíkri menningu þjóða
- Stuðla að því að viðhalda fjölbreytileika tungumála og menningar í Evrópu
- Hvetja til símenntunar í tungumálanámi, bæði innan skólakerfisins og utan þess.
Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hefur einnig ákveðið að árið 2008 sé helgað tungumálum og falið UNESCO að sjá um framkvæmdina. Slagorð ársins er: Tungumál skipta máli. Frekari upplýsingar um verkefnið eru á slóðinni:http://portal.unesco.org/en
Tengiliður við verkefnið í menntamálaráðuneytinu er Guðni Olgeirsson, sími 545 9500, netfang: [email protected] Þess er vænst að Evrópskur tungumáladagur 2008 hafi jákvæð áhrif á tungumálanám og tungumálakennslu og verði einstaklingum hvatning til símenntunar á því sviði.