Ný reglugerð um íþróttasjóð
Nr. 803/2008 |
29. júlí 2008 |
1. gr. Framlög úr Íþróttasjóði má veita til eftirtalinna verkefna:
2. gr. Menntamálaráðuneyti skal árlega auglýsa eftir umsóknum um styrki úr Íþróttasjóði. Í auglýsingu skal koma fram hvert verksvið sjóðsins er sbr. 1. gr. Umsóknir skulu berast íþróttanefnd á þar til gerðum eyðublöðum fyrir 1. október ár hvert. Í umsókn skulu m.a. koma fram upplýsingar um:
Sé sótt um frekari stuðning við verkefni, sem áður hefur hlotið styrk úr Íþróttasjóði, ber umsækjanda að láta fylgja umsókn áfangaskýrslu um stöðu verkefnisins. 3. gr. Íþróttanefnd metur umsóknir og gerir tillögu til menntamálaráðherra um úthlutun úr sjóðnum. Nefndin skal haga starfi sínu í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Við mat á umsóknum skal m.a. tekið tillit til notagildis verkefnanna í almannaþágu og til eigin fjármögnunar umsækjenda. Íþróttanefnd er heimilt að leita álits þar til bærra sérfræðinga á umsóknum um styrki úr Íþróttasjóði. Upplýsingar um styrkveitingar skal birta á vefsíðu menntamálaráðuneytisins. Við úthlutun styrkja til verkefna, sbr. 5. gr. er íþróttanefnd heimilt að binda útborgun styrks skilyrði um að skýrslu um framkvæmd og fjárhagslegt uppgjör eldra verkefnis hafi verið skilað. 4. gr. Þegar ákvörðun um styrkveitingu liggur fyrir sendir íþróttanefnd styrkþega tilkynningu um að styrkur hafi verið veittur og hvernig útborgun hans verður háttað. Styrkur vegna aðstöðu, útbreiðslu- og fræðsluverkefna og vegna íþróttarannsókna sbr. 1.-3. tl. 1. gr., greiðist þegar beiðni um útborgun hans hefur borist til íþróttanefndar. Um greiðslu vegna verkefna samkvæmt 13. gr. íþróttalaga fer eftir verklagsreglum menntamálaráðuneytis. Styrkveiting úr Íþróttasjóði felur ekki í sér skuldbindingu um frekari styrkveitingar til sama verkefnis síðar. 5. gr. Þeir sem hljóta styrki úr Íþróttasjóði sbr. 1.-4. tl. 1. gr. skulu skila skýrslu um framkvæmd og fjárhagslegt uppgjör verkefnis til íþróttanefndar eigi síðar en einu ári eftir að styrkur var samþykktur af ráðherra. Verði breyting á verkáætlun skal styrkþegi leita samþykkis íþróttanefndar fyrir því að ráðstafa styrknum. 6. gr. Sé styrks ekki vitjað innan árs frá því að ráðherra samþykkir úthlutun úr sjóðnum fellur hann niður og rennur til Íþróttasjóðs að nýju. 7. gr. Kostnaður við störf íþróttanefndar skal greiddur af árlegu ráðstöfunarfé sjóðsins. 8. gr. Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 8. gr. íþróttalaga nr. 64/1998, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 188/1999, um Íþróttasjóð. Menntamálaráðuneytinu, 29. júlí 2008. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. Guðmundur Árnason. |