Hoppa yfir valmynd
29. ágúst 2008 Matvælaráðuneytið

Nr. 28/2008 - Samkomulag um alþjóðlegar leiðbeiningarreglur um stjórn djúpsjávarveiða á úthafinu.

Fréttatilkynning frá utanríkisráðuneytinu og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu

Nr. 28/2008

Samkomulag um alþjóðlegar leiðbeiningarreglur

um stjórn djúpsjávarveiða á úthafinu

Samþykktar hafa verið alþjóðlegar leiðbeiningarreglur um stjórn djúpsjávarveiða á úthafinu en annarri lotu samningaviðræðna um reglurnar lauk í dag með einróma samkomulagi á vettvangi Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, FAO, í Róm. Ísland tók virkan þátt í mótun reglnanna og veitti FAO fjárhagslegan stuðning vegna verkefnisins. Fulltrúar utanríkisráðuneytis og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis sátu fundinn.

Almenn samstaða var meðal þátttakenda í viðræðunum um að byggja starfið á fiskveiðiályktun allsherjarþings S.þ. frá 2006 og er niðurstaðan í fullu samræmi við þá ályktun. Leiðbeiningarreglurnar ná annars vegar til veiða á hægvaxta djúpsjávartegundum og hins vegar til áhrifa djúpsjávarveiða á úthafinu á viðkvæm vistkerfi hafsins, svo sem kaldsjávarkórallasvæði, hverastrýtur og vistkerfi við neðansjávartinda. Eitt af meginmarkmiðum reglnanna er að hindra skaðleg áhrif fiskveiða á viðkvæm vistkerfi hafsins.

Í leiðbeiningarreglunum er m.a. fjallað um:

  • hvaða fiskveiðar teljast vera djúpsjávarveiðar í skilningi reglnanna,
  • til hvaða þátta ber að líta við mat á því hvort vistkerfi teljist viðkvæmt,
  • til hvaða þátta ber að líta þegar metið er hvort áhrif á viðkvæm vistkerfi séu verulega skaðleg,
  • hvernig leggja skal mat á framangreind atriði, og
  • hvernig bregðast skal við óvissu í þessu sambandi.

Framkvæmd leiðbeiningarreglnanna verður í höndum svæðisbundinna fiskveiðistjórnunar-stofnana á hafsvæðum þar sem slíkar stofnanir eru fyrir hendi, og fánaríkja viðkomandi veiðiskipa á svæðum þar sem slíkar stofnanir eru ekki til staðar. Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndin, NEAFC, og Norðvestur-Atlantshafsfiskveiðistofnunin, NAFO, hafa þegar hafið vinnu í þessu sambandi. Munu þessar stofnanir tryggja samræmi við leiðbeiningarreglur FAO á ársfundum sínum á komandi hausti. Íslensk skip stunda ekki djúpsjávarveiðar á úthafinu utan samningssvæða stofnananna.

Reykjavík, 29. ágúst 2008



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta