Hoppa yfir valmynd
8. september 2008 Matvælaráðuneytið

Ný sókn í neytendamálum

Síðan ný ríkisstjórn tók við völdum fyrir rúmu ári hefur verið unnið að því að byggja upp öflugt ráðuneyti neytendamála innan viðskiptaráðuneytisins. Einn liður í þeirri uppbyggingu var útgáfa skýrslunnar Ný sókn í neytendamálu, staða neytenda á Íslandi sem unnin var af þremur stofnunum Háskóla Íslands. Til að fylgja því starfi eftir og leita samstarfs við fólk um allt land mun viðskiptaráðherra leggja í fundarherferð um neytendamál sem hefst á morgun, 9. september.

Neytendamál snerta alla íbúa landsins og því mikilvægt að sem flestum gefist kostur á að láta sín sjónarmið í ljós og þannig taka virkan þátt í stefnumótun á þessu sviði. Markmið fundanna er hvoru tveggja að kynna það stefnumótunarstarf sem þegar hefur farið fram og að kalla eftir sjónarmiðum fólks um allt land. Fjölmargir góðir gestir munu leggja Björgvin G. Sigurðssyni lið, til að mynda fulltrúar allra þingflokka á alþingi og ýmsir framámenn á sviði neytendamála.

Hér má sjá dagskrá og lista yfir gesti.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta